Lífið

Stjörnulífið: Hálsklútabyltingin, Gríman og brúð­kaup í Boston

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnulífið er vikulegur liður á Lífinu á Vísi.
Stjörnulífið er vikulegur liður á Lífinu á Vísi.

Nýliðin vika var mögulega sú stærsta hingað til og það fór ekki framhjá neinum að Íslendingar völdu sér nýjan forseta um helgina. Stuðið var mikið hjá forsetaframbjóðendum en eðli málsins samkvæmt langmest í Grósku þar sem Halla Tómasdóttir fagnaði glæsilegum sigri. Þetta var þó ekki eini viðburðurinn í vikunni, en Gríman og Sjómannadagurinn voru einnig haldin hátíðleg svo eitthvað sé nefnt. 

Forsetakosningar

Hálsklútar voru allsráðandi á kosningavöku Höllu tómasdóttur nýkjörins Forseta Íslands.

Helgi Ómarsson ljósmyndari og áhrifavaldur setti á sig klút á kjördag.

Eva Mattadóttir athafnakona var himinlifandi með niðurstöður kosninga. „Nú þegar Halla hefur verið kjörin forseti Íslands finn ég fyrir djúpu stolti yfir því að vera Íslendingur,“ skrifar Eva í færslu á Intstagram.

Gummi kíró setti upp klútinn fyrir sína konu Höllu Tómasdóttur.

Jón Gnarr segist sáttur og þakklátur.

Sólborg Guðbrandsdóttir var aðstoðarkona Baldurs Þórhallssonar í hans forsetaframboði.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir óskar nýkjörnum Forseta Íslands til hamingju með embættið.

Ari Bragi Kárason tónlistarmaður og kærastan hans Dóróthea Jóhannesdóttir nýttu kosningaréttinn í Kaupmannahöfn.

Hjónin María Rut Kritinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir tóku börnin með á kjörstað.

Hjúkrunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Viktor Andersen klæddi sig upp á kjördag.

Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Milla Magnúsdóttir aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra mættu prúðbúin á kjörstað.

Mæðgnaferð til Balí

Birgitta Haukdal tónlistarkona fór í slökunarferð með móður sinni til Balí.

Jazzhátíð í Kóreu

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir kom fram á Jazzhátið í Kóreu um helgina.

Hinseginhátíð í Borgarnesi

Friðrik Ómar Hjörleifsson tónlistarmaður bauð til fundar vegna stærsta viðburðar á Vesturlandi í sumar, Hinseginhátíð Vesturlands og Bæjarhátíðin Brákarhátíð.

Ný plata og útgáfutónleikar

Tónlistarfólkið Bríet og Birnir gáfu út plötuna 1000 orð á dögunum.

Brúðkaup í Boston

Tónlistarmaðurinn Jón Jónson og Hafdís Björk Jónsdóttir fóru í brúðkaup í Boston.

Gríman í Þjóðleikhúsinu

Ásta Jónína hlaut verðlaun fyrir lýsingu ársins í Ást Fedru.

Hildur Vala Baldursdóttir leikkona klæddist glæsilegum gulum kjól á Grímunni.

Katrín Halldóra Sigurðardóttir afhenti nokkur verðlaun á hátíðinni.

Unnur Elísabet hlaut Grímuverðlaun fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.