Neytendur

Hinn al­menni borgari þurfi ekki að dæla í sig stein­efnum

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur segir að flestir þurfi ekki á vörum sem innihalda steinefni að halda.
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur segir að flestir þurfi ekki á vörum sem innihalda steinefni að halda. Aðsend/Getty

„Mér finnst þetta merkilegt að við séum komin í svona mikla steinefnaneyslu. Það getur líka verið hættulegt að nota of mikið af steinefnum. Það ruglar í vökvajafnvægi í líkamanum og myndar bjúg og annað.“

Þetta segir Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur um salt- og steinefnaæðið sem hefur gripið um sig hér á landi. Margir söluaðilar markaðssetja nú salt- og steinefni gagnvart Íslendingum sem blanda efnunum iðulega við vatn í formi dufts eða freyðitaflna. 

Iðjan hefur aukist verulega í vinsældum hér á landi síðustu misseri en sem dæmi um vörur er hægt að nefna Happy Hydrate, Collab Hydro, Nuun og High 5. Geir tekur fram að í raun þurfi aðeins afreksíþróttafólk, fólk sem glímir við veikindi eða vannæringu og fólk sem svitnar mjög mikið á steinefnunum að halda.

Markaðsefni villa um fyrir neytendum

Markaðsefni söluaðila beinir því til fólks sem kann að finna fyrir þrekleysi eða þreytu að taka steinefni inn við alls konar aðstæður. Til dæmis við æfingar, á ferðalagi og í vinnunni. Þá er mikið lagt upp úr því í markaðsefninu að fólk kunni að þjást af vökvaskorti vegna þjálfunar, veikinda, hita eða skorts á svefni. Geir segir að oft á tíðum villi markaðsefni um fyrir neytendum.

„Ég hef pælt svolítið mikið í þessu sem næringarfræðingur. Það er merkilegt í sjálfu sér að hinn almenni borgari í skrifstofuvinnu sé farinn að dæla í sig svona mikið af söltum. Þetta hefur yfirleitt verið afreksíþróttafólk sem er í miklu svitatapi,“ segir Geir.

Einstaklingsbundið mat

Hann dregur það jafnframt í efa að steinefnin auki orku og einbeitingu hjá hefðbundnu fólki sem þjáist öllu jafna ekki af steinefnaskorti. 

„Það er mikilvægt að fólk meti það sjálft hversu mikið það er að svitna. Það sem getur verið erfið íþrótt fyrir einn getur verið auðvelt fyrir annan. Þetta er svolítið einstaklingsbundið. Ef þú ert að æfa kannski fimm til sex sinnum í viku þá ertu farinn að nálgast þetta afreksíþrótta mark.“

Matur nægir fyrir flesta

Spurður hvort að fólk sem stundi kannski hefðbunda hreyfingu nokkru sinnum í viku þurfi á vörunum að halda segir Geir:

„Bara alls ekki. Þetta er bara tvennt ólíkt. Maturinn er líka steinefnaríkur. Í matnum okkar eru þessi steinefni og vítamín sem að hinn almenni borgari þarf á að halda.“

Geir undirstrikar jafnframt að algengasta steinefnið sé natríum sem fyrirfinnst í matarsalti. Hann segir litla sem enga hættu á því að fólki skorti natríum. 

Hann bendir á að matarsalt sé notað í flestar máltíðir og að öllu heldur séu frekar líkur fyrir því að fólk sé með of mikið af natríum í líkamanum. Því til stuðnings nefnir hann að Íslendingar eru iðulega duglegir að nota salt á franskar og innbyrða unnar matvörur. 

Steinefni mikilvæg fyrir starfsemi líkamans

Geir tekur þó fram að steinefni séu mjög mikilvæg fyrir starfsemi líkamans og að fólk þurfi vissulega þessi efni. Hann segir þó enga ástæðu til að innbyrða fæðubótaefnin ef það er ekkert tap á steinefnum vegna svitataps eða veikinda sem draga úr því að fólk nærist eðlilega.

Hann nefnir að fólk sem drekkur mjög mikið vatn dag frá degi kunni að skola burt þeim steinefnum sem eru til staðar í líkamanum. Þá kann að vera gott að drekka vörurnar á móti til að binda saman steinefnin í líkamanum.

„Ég vil bara hvetja Íslendinga til heilsu og til að drekka íslenska vatnið,“ segir hann að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×