Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Florian Wirtz opnaði markareikning mótsins strax í upphafi leiks.
Florian Wirtz opnaði markareikning mótsins strax í upphafi leiks. Shaun Botterill/Getty Images

Þýskaland vann afar öruggan 5-1 sigur gegn Skotlandi í opnunarleik Evrópumótsins.

Florian Wirtz kom heimamönnum yfir strax á 10. mínútu leiks. Boltanum var skipt yfir á hægri kantinn til Joshua Kimmich sem fann Wirtz í fínu plássi rétt fyrir utan teig.

Wirtz var snöggur að hleypa skotinu af, markmaðurinn náði snertingu en varði boltann í stöngina og inn.

Skömmu síðar átti Kai Havertz gott hlaup inn fyrir varnarlínu Skota og sendingin frá Gundogan rataði beint fyrir hann. Havertz sneri á varnarmann sem kastaði sér fyrir, lagði boltann út á Jamal Musiala sem þrumaði boltanum í þaknetið og tvöfaldaði forystu heimamanna.

Á 25. mínútu flautaði dómarinn og benti á vítapunktinn, en eftir myndbandsskoðun kom í ljós að brotið átti sér stað utan teigs. Florian Wirtz skaut að marki en markmaðurinn greip skot hans örugglega.

Vítið sem þeir vildu kom á 44. mínútu þegar Ryan Porteous renndi sér með sólann á undan í Ilkay Gundogan. Porteous fékk rautt spjald og Kai Havertz stillti sér upp fyrir spyrnuna.

Havertz steig á punktinn og skoraði af öryggi. Image Photo Agency/Getty Images

Hann skoraði af miklu öryggi og sendi markmanninn í rangt horn. Hálfleikstölur 3-0 heimamönnum í vil.

Í seinni hálfleik voru Skotar manni færri, þeir reyndu bara að láta tímann líða og fá ekki á sig fleiri mörk.

Það gekk fyrst um sinn en svo kom Niclas Fullkrug inn á. Honum var skipt inn á 63. mínútu, fimm mínútum síðar fékk hann boltann fyrir utan vítateig og skaut þrumufleyg í fjærhornið. Algjörlega óverjandi skot og glæsilegt fjórða mark.

Niclas Fullkrug átti frábæra innkomu og kom boltanum tvisvar í netið þó aðeins eitt mark hafi staðið. Kevin Voigt/GettyImages

Fullkrug setti boltann aftur í netið á 76. mínútu en var dæmdur rangstæður.

Skotar fengu mark til sárabóta þegar Antonio Rudiger setti boltann óvart í eigið net á 87. mínútu. Rudiger var afskaplega óheppinn en stýrði boltanum í netið af mikilli snilli.

Emre Can kórónaði svo frábæran leik Þjóðverja með marki á þriðju mínútu uppbótartíma. Fékk boltann rétt fyrir utan teig, krullaði framhjá markverðinum og tryggði 5-1 sigur heimamanna.

Þýskaland leikur næst gegn Ungverjalandi og Skotland á næst leik við Sviss, miðvikudaginn 19. júní. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira