Lífið

Ein­stakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu

Jakob Bjarnar skrifar
Guðni Finnsson er harla ánægður með hljóðfærið en hver og einn gítar er þakinn frímerkjum frá ólíkum löndum. Draumur Mooney forstjóra Fender er að til verði 195 eintök þar sem hver gítar um sig er fulltrúi sinnar þjóðar en hann fórnaði frímerkjasafni sínu í verkefnið.
Guðni Finnsson er harla ánægður með hljóðfærið en hver og einn gítar er þakinn frímerkjum frá ólíkum löndum. Draumur Mooney forstjóra Fender er að til verði 195 eintök þar sem hver gítar um sig er fulltrúi sinnar þjóðar en hann fórnaði frímerkjasafni sínu í verkefnið. aðsend

Arnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Hljóðfærahússins, hafði frétt af handsmíðuðum Fender Telecaster sem þakinn er íslenskum frímerkjum og var fljótur að festa sér gripinn.

„Já, við hér í Hljóðfærahúsinu vorum að fá í hús glæsilegan „Custom shop Fender Telecaster“ sem er þakin íslenskum frímerkjum. Forstjóri Fender, Andy Mooney, er sem sagt mikill frímerkjasafnari og hann gerði nokkra gítara í þessum stíl, það er með frímerkjum nokkurra landa,“ segir Arnar Þór.

Hér má sjá hvernig gítarinn hefur verið þakinn íslenskum frímerkjum.aðsend

Arnar og Guðni Finnsson starfsmaður Hljóðfærahússins, eru að vonum spenntir að fá þetta einstaka hljóðfæri í hendur en að sögn Arnars er Guðni sérlegur sendiherra Fender á Íslandi. „Sá gullfallegi bassaleikari.“

Aðeins 50 gítarar af þessu tagi eru til og gaman að sá sem er með íslensku frímerkjunum hafi ratað hingað. Arnar Þór segir að auðvitað hafi þeir keypt hann inn.

Guðni er sérlegur sendiherra Fender á Íslandi og hann er kátur með gítarinn.aðsend

„Já, þetta er nýr gítar. Við vorum að trilla honum inn í búðina. Þetta er gæluverkefni forstjóra Fender, Mooney er merkilegur maður. Hann er frímerkjasafnari og gerði sem sagt þessa útgáfu. Já, hann er mikið nörd. Aldeilis. Ég hef því miður ekki hitt manninn en þetta virðist vera skemmtileg týpa.“

Arnar Þór er ekki frá því að þarna megi finna sjaldgæf frímerki. Hann segir þetta verkefni Mooney ekki fara hátt og hann hafi aðeins fundið einn gítar á netinu en sá er í Singapore.

Arnar segir hljóðfærið dásamalegt og hann vonar að með tíð og tíma muni einhver íslenskur safnari eignast gripinn en hann er falur fyrir rúmar 800 þúsund krónur.

Forstjóri Fender safnar jafnframt frímerkjum og Mooney notaði hluta safns síns í 50 handsmíðaða Fendergítara. Hver og einn gítar er einstakur en forstjórinn vill helga safn þessara 50 gítara lagi Lennon´s Imagine.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.