RARIK tryggði raforku til mun lengri tíma en Landsnet til að draga úr áhættu
![Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri RARIK, segir að þegar stefni í orkuskort sé skynsamlegra að tryggja kaup til lengri tíma sé það nokkur möguleiki. „Þetta er svolítið eins og að velja á milli fastra eða breytilegra vaxta þegar kemur að húsnæðisláninu, ef það stefnir í að vextir hækki getur verið skynsamlegra að festa þá“.](https://www.visir.is/i/C3F1C083130A4C41C7F84418C2A050F80F801D8C67F2648370FC700C0D66F744_713x0.jpg)
Aðstoðarforstjóri RARIK segir að dreifiveitan hafi í gegnum tíðina tryggt sér raforku vegna tapa í raforkukerfinu til mun lengri tíma en Landsnet til að draga úr áhættu í rekstri. Óeðlilegt sé að flutningsfyrirtækið geti fleytt á þriggja mánaða fresti breyttum orkukostnaði til viðskiptavina en RARIK sé á meðal þeirra. „Það vantar í regluverkið hvata fyrir flutningsfyrirtækið til að sýna fyrirhyggju í raforkukaupum. Fyrirtækið getur tekið áhættu við orkukaup en ber ekki kostnaðinn.“