Viðskipti innlent

Hundrað manna hjúkrunar­heimili gæti sparað tugi milljóna með smáforriti

Lovísa Arnardóttir skrifar
Anna Björk Baldvinsdóttir
Anna Björk Baldvinsdóttir Aðsend

Á hundrað manna hjúkrunarheimili væri hægt að spara um 24 milljónir árlega ef smáforritið Iðunn yrði innleitt í starfsemina. Þetta er meðal niðurstaða í lokaverkefni Önnu Bjarkar Baldvinsdóttur í hagfræði. Hún gerði í verkefninu kostnaðarábatagreiningu við innleiðingu Iðunnar á landsvísu.

Fjallað var um forritið í fréttum Vísis fyrr á árinu. Þar kom fram að hjúkrunarfræðingum tókst að minnka skriffinnsku um margar klukkustundir með notkun smáforritsins. Í forritinu eru forskráð verkefni sem starfsfólk hakar við að loknu verki. 

Á hjúkrunarheimilum er skráning meðferðar í sjúkraskrá á ábyrgð hjúkrunarfræðinga, en með forritinu getur ófaglært starfsfólk skráð inn verkþætti sem vistast beint í Sögu þar sem hjúkrunarfræðingur hefur yfirsýn yfir meðferð íbúa. Með því að nota forritið er þannig hægt að spara hjúkrunarfræðingum mikla vinnu og hægt að nýta tíma þeirra í annað.

Niðurstöður rannsóknar Önnu Bjarkar sýndu að nettó ábati Iðunnar var 663.624.945 krónur eða um 663 milljarðar á landsvísu. Til að meta ábatann af innleiðingu Iðunnar framkvæmdi Anna kostnaðarábatagreiningu ásamt næmnigreiningu á innleiðingunni. 

Þrír verkþættir kannaðir

Ábatinn var metinn út frá mælingum og áætlunum á tíma þriggja verkþátta með og án Iðunnar. Þeir voru uppfletting meðferðarsviðs, uppfletting og framkvæmd símtals til aðstandenda og sáramyndatökur.

Vinnunni við verkþættina var síðan umbreytt í peningalegt virði út frá launum þess sem framkvæmdi verkið. Samkvæmt greiningu er áætlaður tímasparnaður við upplýsingafundi samkvæmt deildarstjórum hjúkrunarheimila sem þegar hafa innleitt Iðunni 30 mínútur fyrir sjö til níu manns. 

Tímataka á sári tók um sex mínútur án Iðunnar en tuttugu sekúndur með henni. Aðsend

Tímataka fyrir uppflettingu meðferðastigs sýndi að hún tók að jafnaði eina mínútu og 34 sekúndur án Iðunnar en 10 sekúndur með Iðunni. Tímataka á uppflettingu símanúmers og framkvæmd símtals án Iðunnar var ein mínúta og 58 sekúndur en 20 sekúndur með Iðunni. Tími sem fór í myndatökur á sárum mældist um það bil sex mínútur án Iðunnar en 20 sekúndur með Iðunni.

Samkvæmt rannsókn Önnu yrði árlegur ábati af tímasparnaði við framkvæmd þessa verka 691.547.362 krónur ef Iðunn yrði innleidd í öllum hjúkrunarrýmum landsins, áður en tekið er tillit til kostnaðar. Ef það er reiknað, með sömu forsendum fyrir hundrað manna hjúkrunarheimili, sýndu útreikningar hennar ábata upp á um 24 milljónir árlega, eða nákvæmlega 24.446.708 krónur.


Tengdar fréttir

Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið

Formaður Félags íslenskra heimilislækna fagnar því að heilbrigðisráðherra sýni í verki vilja til að koma til móts við lækna en vill fleiri og stærri skref. Á dögunum voru drög að reglugerðarbreytum um einföldun á fyrirkomulagi tilvísana fyrir börn birtar í samráðsgátt stjórnvalda.

Fækkuðu tímum í skrif­­finnsku um tugi klukku­­stunda á mánuði

Hjúkrunarfræðingum hefur tekist að minnka skriffinnsku um margar klukkustundir með notkun smáforritsins Iðunnar. Í forritinu eru forskráð verkefni sem starfsfólk hakar við að loknu verki. Forritið minnkar skriffinnsku og eykur yfirsýn að mati rannsakanda.

Heimilislæknar boða einhliða aðgerðir verði skriffinnskan ekki afnumin

Heimilislæknar ætla að beita einhliða aðgerðum ef ekki verður komið til móts við kröfur þeirra um afnám skriffinnsku sem þeir telja óþarfa. Stór hluti af vinnudegi þeirra fari í pappírsvinnu sem valdi því að löng bið er eftir tíma hjá heimilislækni. Þá er meira en helmingur heimilislækna við kulnunarmörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×