Fjármagn heldur áfram að streyma út úr hlutabréfasjóðum
![Ólíkt öðrum hlutabréfamörkuðum í okkar helstu nágrannalöndum þá er Úrvalsvísitala Kauphallarinnar niður um nærri átta prósent frá áramótum.](https://www.visir.is/i/278A2B5BF9D38772BA8B231A70B97B1F4DB110A7790A068FDAA3BD300E7EE052_713x0.jpg)
Aukinn áhugi fjárfesta á hlutabréfasjóðum í kringum síðustu áramót reyndist skammlífur og fjármagn er aftur tekið að flæða út úr slíkum sjóðum samtímis erfiðu árferði á hlutabréfamarkaði. Fjárfestar seldu í verðbréfasjóðum, einkum þeim sem fjárfesta í skuldabréfum, fyrir samanlagt um fimmtán milljarða í liðnum mánuði.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/90511A751F9326FF6EF8D443800C992CCB5AE95B25456B6B69367A6D5D734101_308x200.jpg)
Umfangsmikil hlutafjárútboð draga „töluvert máttinn“ úr markaðnum
Hlutabréfamarkaðurinn hérlendis hefur verið þungur á meðan flestir markaðir sem horft er til hafa hækkað töluvert. Sjóðstjórar og aðrir markaðsaðilar segja að hlutabréfaverð hérlendis sé almennt nokkuð hagstætt en mikið fjármagn hefur leitað í frumútboð sem hefur dregið kraft úr markaðnum. Viðmælendur Innherja eiga ekki von á því að markaðurinn taki við sér fyrr en verðbólga hjaðnar og stýrivextir fara að lækka.
![](https://www.visir.is/i/61A1C181C8BFA0267A46F9C73E14648A90DEE2BB9FD5EDA5DF353E2F1DFA05C9_308x200.jpg)
Innlán heimila vaxa sem sýnir að „peningastefnan er að virka“
Innlán heimila halda áfram að vaxa á sama tíma og hlutabréfamarkaður hérlendis hefur verið þungur. Einkaneyslan hóf að gefa eftir um mitt síðasta ár og sparnaður heimilanna jókst á ný enda hafa laun hækkað og innlánsvextir hækkað verulega undanfarin tvö ár. Er þetta til marks um að peningalegt aðhald Seðlabankans hafi ekki einungis áhrif á neysluhneigð almennings heldur ýtir einnig undir sparnað, segja hagfræðingar. Vaxtatekjur heimila eru nú meiri en vaxtagjöld.