Spánverjar í átta liða úrslit en ævintýri Georgíu á enda Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. júní 2024 18:30 Nico Williams skoraði þriðja mark Spánverja. Edith Geuppert - GES Sportfoto/Getty Images Spánverjar tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins er liðið vann 4-1 sigur gegn Georgíu. Spánverjar voru mun meira með boltann á upphafsmínútum leiksins og virtust alltaf líklegri til að skora fyrsta markið. Það voru þó Georgíumenn sem voru fyrri til að brjóta ísinn þegar þeirra fyrsta sókn í leiknum endaði með því að fyrirgjöf Otar Kakabadze fór af Robin Le Normand í netið á 19. mínútu. 🇬🇪 Georgia take the lead in Cologne!#EURO2024 | #ESPGEO pic.twitter.com/FSAm67m6aA— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) June 30, 2024 Spánverjar voru þó ekki lengi að jafna sig á því. Rodri jafnaði metin fyrir liðið með góðu skoti tæpum tuttugu mínútum síðar og staðan í hálfleik því 1-1. Spænska liðið hélt svo áfram að þjarma að Georgíumönnum í síðari hálfleik og Fabian Ruiz kom liðinu yfir á 51. mínútu. Nico Williams batt svo endahnútinn á góða skyndisókn á 75. mínútu og kom Spánverjum í 3-1 áður en Dani Olmo gerði endanlega út um leikinn á 83. mínútu. GOAL!Spain 4-1 Georgia (Olmo 83')#EURO2024 | #ESPGEO pic.twitter.com/jAOd3oiqgq— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) June 30, 2024 Niðurstaðan varð því að lokum 4-1 sigur Spánverja sem eru komnir í átta liða úrslit þar sem liðið mætir Þjóðverjum næstkomandi föstudag. Georgíumenn, sem sitja í 74. sæti heimslista FIFA, eru hins vegar á heimleið. EM 2024 í Þýskalandi
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti