Menning

Gera grín að bransanum með „virtustu verð­launum heims“

Ólafur Björn Sverrisson og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa
Aðstandendur sýningarinnar; Ágúst Örn Wigum, Birta Sólveig Söring Þórisdóttir , Kolbeinn Sveinsson, Katla Þórudóttir Njálsdóttir og Berglind Alda Ástþórsdóttir.
Aðstandendur sýningarinnar; Ágúst Örn Wigum, Birta Sólveig Söring Þórisdóttir , Kolbeinn Sveinsson, Katla Þórudóttir Njálsdóttir og Berglind Alda Ástþórsdóttir. vísir

Verðlaunahátíðin Strandgate Film festival verður haldin í Háskólabíó í kvöld. Þar munu stærstu myndir ársins keppast um ein virtustu verðlaun heims - að minnsta kosti að sögn skipuleggjenda.

Kvikmyndahátíðin fer fram í Háskólabíói þar sem sviðslistahúsið Afturámóti hefur komið sér fyrir. Í sumar stendur hópurinn fyrir fjölda leiksýninga og gjörninga.

Einn þeirra er fyrrnefnd hátíð Strandgate Film Festival. Elín Margrét fréttamaður ræddi við aðstandendur sýningarinnar í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þau Kolbeinn Sveinsson og Berglind Alda Ástþórsdóttir voru í banastuði:

„Til að draga þetta aðeins niður á jörðina, þá er þetta í raun leiksýning og bíó. Sett saman í eitt. Kjarni málsins er að við erum allt. Við erum að kynna, leika í bíómyndunum, veita verðlaun, taka á móti verðlaunum,“ sagði Kolbeinn.

„Tilgangurinn með þessu er að gera grín að bransanum, við erum að gera grín að íslenskum og erlendum kvikmyndum. Klisjunum á þessum hátíðum og í þessum myndum. Þannig við erum að reyna að hafa gaman að þessu og hafa smá sprell,“ sagði Berglind Alda. 

Hægt er að nálgast miða á sýningar á vegum Afturámóti hér






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.