Lífið

Snæ­fríður selur útsýnisíbúð við Hverfis­götu

Boði Logason skrifar
Högni og Snæfríður eignuðust nýverið sitt fyrsta barn saman.
Högni og Snæfríður eignuðust nýverið sitt fyrsta barn saman.

Listakonan Snæfríður Ingvarsdóttir hefur sett glæsilega 40 fermetra íbúð við Hverfisgötu í Reykjavík á sölu. Íbúðin er á fimmtu og efstu hæð í nýlegu lyftuhúsi. Ásett verð fyrir eignina er 54,9 milljónir. 

Um er að ræða tveggja herbergja íbúð með fallegu útsýni til suðurs yfir miðborgina og norður til sjávar og fjalla. Eignin er einstaklega björt með aukinni lofthæð. Eldhús og stofa eru í samliggjandi og opnu rými. Þaðan er útgengt á rúmgóðar suður svalir.

Nánari upplýsingar um eignina má nálgast á fasteignavef Vísis.

Snæfríður og unnusti hennar, Högni Egilsson listamaður eignuðust stúlku 25. júní síðastliðinn. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman. 

Parið kynntist á skemmtistað í Reykjavík árið 2014 og byrjuðu að hittast stuttu síðar.

Þau Snæfríður og Högni starfa bæði innan listageirans, hún sem leik- og tónlistarkona og hann sem tónlistarmaður, og eru án efa eitt heitasta par landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.