Lífið

Jennifer Lopez og Ben Affleck selja glæsihöllina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ben Affleck og Jennifer Lopez í Feneyjum.
Ben Affleck og Jennifer Lopez í Feneyjum. AP/Joel C Ryan

Hollywood-hjónin Jennifer Lopez og Ben Affleck hafa sett glæsihöll sína í Beverly Hills á sölu. Ásett verð fyrir eignina er 68 milljónir dollara eða um níu milljarðar íslenskra króna.

Húsið er 3.530 fermetrar að stærð búið tólf svefnherbergjum og tuttugu og fjórum baðberherbergjum, tólf bílskúrum, einkastæði sem rúmar áttatíu ökutæki, heilsulind, tennisvöll og fimm þúsund fermetra gestaíbúð svo fátt eitt sé nefnt. 

Redfin

Eignin var sett á sölu síðdegis í gær aðeins einum mánuði eftir þrálátan orðróm um yfirvofandi skilnað Affleck og Lopez en þau hafa eytt miklum tíma í sundur síðastliðnar vikur og mánuði. 

Á bandaríska fasteignavefnum Redfin kemur fram að húsið hafi verið byggt árið 2000 en fengið allsherjar yfirhalningu síðastliðna fjóra mánuði þar sem ekkert var til sparað. Hjónin festu kaup á húsinu snemma í byrjun síðasta árs. 

Redfin
Redfin
Redfin

Lopez og Affleck gengu í hjónaband þann 16. júlí 2022.  Affleck á þrjú börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Jennifer Garner. Þá er hann stjúpfaðir tvíbura Jennifer Lopez sem hún á með fyrrverandi eiginmanni sínum, Marc Anthony.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.