Lífið

Ó­vin­sæll í vina­hópnum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hjónin eru enn hjón en vilja samt ekki vera saman.
Hjónin eru enn hjón en vilja samt ekki vera saman. EPA-EFE/ETIENNE LAURENT

Ben Affleck varð aldrei vinsæll meðal nánustu vina og samstarfsmanna Jennifer Lopez, sem sættu sig einungis við að besta vinkona þeirra væri gift leikaranum. Meðal þeirra sem tóku leikarann aldrei í sátt var umboðsmaðurinn Benny Medina en hann hefur haft Lopez á sínum snærum um árabil.

Þetta er fullyrt í umfjöllun bandaríska slúðurmiðilsins PageSix. Líkt og fram hefur komið er hjónaband þeirra Affleck og Lopez svo gott sem á endastöð. Þau hafa ekki sést saman opinberlega síðan í mars. Samkvæmt nýjustu tíðindum vill Affleck ekki skilja við söngkonuna alveg strax, henni til mikilla ama.

Í frétt miðilsins segir að umboðsmaðurinn hafi aldrei þolað Affleck, allt frá því að þau Lopez voru síðast saman í upphafi aldarinnar. „Þau þola ekki hvort annað. Þeim hefur aldrei líkað við hvort annað og það er enn slæmt á milli þeirra,“ segir ónefndur heimildarmaður bandaríska slúðurmiðlinum.

Fram kemur að Lopez og Medina hafi haldið í sitthvora áttina árið 2003 einmitt vegna Affleck. Hún hafi ráðið hann aftur örfáum árum síðar og umboðsmaðurinn passað sig að tala ekki illa um Affleck í síðara skiptið.

Eyðilagði vináttuna

Þá kemur fram í umfjöllun bandaríska miðilsins að hjónaband þeirra Affleck og Lopez hafi orðið til þess að slitnaði upp úr vináttu Lopez og bestu vinkonu hennar Leah Remini. Henni kynntist hún í gegnum fyrrverandi eiginmann sinn Marc Anthony.

Ástæðan sú að Leah hafi hvatt Lopez til þess að hugsa sig tvisvar um áður en hún fór að hitta Affleck að nýju. Hvatti hún söngkonuna til að rifja það upp hvers vegna þau hefðu hætt saman síðast.

„Henni fannst hann vera eigingjarn og ekki leggja sig nægilega fram. J.Lo var ekki sátt við að heyra þetta svo að það eyðilagði vináttuna,“ segir heimildarmaðurinn. Remini og Lopez séu hinsvegar orðnar vinkonur að nýju og Remini staðið með sinni konu á erfiðum tímum.


Tengdar fréttir

Jennifer Lopez og Ben Affleck selja glæsihöllina

Hollywood-hjónin Jennifer Lopez og Ben Affleck hafa sett glæsihöll sína í Beverly Hills á sölu. Ásett verð fyrir eignina er 68 milljónir dollara eða um níu milljarðar íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.