Lífið

Adele trú­lofuð

Jón Þór Stefánsson skrifar
Adele greindi frá tíðundunum á tónleikum í Munchen.
Adele greindi frá tíðundunum á tónleikum í Munchen. Getty

Breska tónlistarkonan Adele er trúlofuð. Hún greindi sjálf frá þessu á tónleikum í Munchen í Þýskalandi.

Sky fjallar um málið, en miðillinn segir að svo virðist sem að á miðjum tónleikum hafi Adele orðið vör við skilti í áhorfendahópnum með áletruninni: „Viltu giftast mér?“

Adele er sögð hafa lesið þessa spurningu upphátt og svarað: „Ég get ekki gifst þér vegna þess að ég er trúlofuð, þannig ég get það ekki, en ég kann að meta þetta. Takk fyrir.“

Síðan hafi hún sýnt áhorfendum fingur sína, en hún virðist hafa borið trúlofunarhring á einum þerra.

Adele hefur átt í ástarsambandi við bandaríska íþróttaumboðsmanninn Rich Paul frá árinu 2021.

Adele var áður gift Simon Konecki, en þau skildu árið 2021.

Rich Paul og Adele á Grammy-verðlaunahátíðinni.Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.