Bíó og sjónvarp

Ljós­brot í for­vali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Myndin hefur unnið til fernra alþjóðlegra verðlauna í sumar.
Myndin hefur unnið til fernra alþjóðlegra verðlauna í sumar. Aðsend

Á blaðamannafundi í morgun tilkynnti franska leikkonan Juliette Binoche, forseti Evrópsku kvikmyndaakademíunnar, að Ljósbrot undir leikstjórn Rúnars Rúnarssonar hafi verið valin til forvals Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.

Í vor var Ljósbrot opnunarmynd á kvikmyndahátíðinni í Cannes og hlaut myndin standandi lófaklapp áhorfanda og góða dóma gagnrýnenda. Hollywood Reporter og Screendaily hafa sett myndina á sína lista yfir bestu myndir hátíðarinnar. Þá vann myndin einnig til fernra alþjóðlegra kvikmyndaverðlauna í sumar.

Fréttirnar koma á góðum tíma þar sem Ljósbrot verður frumsýnd á Íslandi þann 28. ágúst og sjá Sambíóin um dreifingu.

Leikhópurinn ásamt Rúnari Rúnarssyni leikstjóra.Aðsend

„Þegar saman koma, ótrúlega góður leikarahópur, frábært fagfólk og listafólk, þá geta stórkostlegir hlutir gerst. Við erum ótrúlega stolt af öllu þessu fólki og erum þeim þakklát fyrir að hafa skapað þetta fallega verk með okkur. Jarðvegur sem einkaaðilar og stjórnvöld hafa ræktað undanfarin ár hefur einnig verið ómetanlegur í öllu þessu ferli,“ segir Rúnar Rúnarsson, leikstjóri myndarinnar.

Með aðalhlutverk í Ljósbroti fara Elín Hall, Katla Njálsdóttir, Mikael Kaaber, Baldur Einarsson, Gunnar Kristjánsson og Ágúst Wigum. Myndin gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu er sett á hliðina á svipstundu og upphefst rússibanareið tilfinninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.