Mohammed bin salman, krónprins og raunverulegur leiðtogi Sádi-Arabíu, fól þjóðarsjóðinum PIF að styrkja efnhagslegar stoðir olíuríkisins og fegra ímynd þess á alþjóðavísu eftir að hann tók við sem stjórnarformaður hans árið 2015.
Auk þess að dæla tugum milljarða dollara í fjárfestingar í vestrænum fyrirtækjum hafa Sádar vakið mikla athygli með því sem hefur verið kallað íþróttaþvætti. Liður í því var meðal annars að kaupa enska knattspyrnuliðið Newcastle, þjóðnýta lið í sádiarabísku deildinni og kaupa þangað alþjóðlegar stórstjörnur eins og Cristiano Ronaldo dýrum dómum, og stofna LIV-golfmótaröðina til höfuðs bandarísku PGA-mótaröðinni.
Nú segir Financial Times að Sádar séu byrjaðir að halda fastar um pyngjuna en áður og fyrirtæki í leit að innspýtingu fjármagns geti ekki lengur gengið að því sem vísu að fá þá til þess að skrúfa frá peningakrananum.
„Þessu er að ljúka. Þetta er að renna upp fyrir fólki,“ segir háttsettur stjórnandi hjá fjárfestingarbanka í Dúbaí.
Áhugi á fjármagni frá Sádi-Arabíu hafi dvínað tilfinnanlega, meðal annars vegna þess að þeir sem sækjast eftir því hafi ekki haft erindi sem erfiði.
Reyna að beina fjárfestingum heim
Sádar eru nú sagðir setja fleiri skilyrði fyrir fjárfestingum en áður, meðal annars um að hún verði að skila störfum í Sádi-Arabíu eða að hluti fjárins renni til uppbyggingar fyrirtækja eða verkefna þar. Í sumum tilfellum krefjast Sádar mótfjárfestingar þar.
„Þetta er hluti af áætlun sem er að þróast. Þeir hefðu ekki getað haldið svona áfram endalaust,“ hefur blaðið eftir breskum fjárfestingabankamanni.
Ástæðan er meðal annars rakin til þess að Sádar hafa dregið verulega úr olíuframleiðslu sinni til þess að halda uppi verði á hráolíu. Það hefur komið niður á tekjum ríkisins sem er nú rekið með halla.