Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Innlent 7.3.2026 11:12
Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Átján Íslendingar hafa óskað eftir því að fá sæti í skipulögðum björgunarferðum frá Jórdaníu og Sádí-Arabíu á morgun og á föstudag. Ekki liggur fyrir hversu mörg sæti verða í boði fyrir Íslendinga í ferðunum. Innlent 4.3.2026 11:57
Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Knattspyrnuparið Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson býr með syninum Ragnari Frank í Sádi-Arabíu, nærri stríðsástandinu sem nú geisar í Mið-Austurlöndum. Fótbolti 1.3.2026 12:57
Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka snýr aftur á PGA-mótaröðina strax í lok þessa mánaðar eftir að hann samþykkti að gera yfirbót fyrir brotthvarf sitt til LIV-mótaraðarinnar. Undanþága sem er sérsniðin að stærstu stjörnum LIV stendur þeim tímabundið til boða. Golf 13. janúar 2026 15:00
Liðsfélagi Ronaldo missti stjórn á skapi sínu og sló andstæðing Cristiano Ronaldo skoraði eina mark Al-Nassr í 3-1 tapi liðsins gegn Al-Hilal í toppslag sádi-arabísku deildarinnar í kvöld. Liðsfélagi Ronaldo missti stjórn á skapi sínu í leiknum og fékk að líta rauða spjaldið. Fótbolti 12. janúar 2026 19:34
Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Her Sádi-Arabíu gerði í morgun loftárásir á höfnina í Mukalla í Jemen sem sagðar eru hafa beinst að vopnasendingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu vöruðu í kjölfarið furstadæmin við því að aðgerðir þeirra og stuðningur við vopnaðan hóp sem kallast STC væri einkar hættulegur. Erlent 30. desember 2025 09:41
Pútín sagður hafa valið Witkoff Steve Witkoff, fasteignamógúll og golffélagi Donalds Trump til langs tíma, hafði starfað sem sérstakur erindreki forsetans í einungis nokkra daga þegar honum bárust skilaboð frá krónprins Sádi-Arabíu. Skilaboðin voru um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði áhuga á að hitta hann. Erlent 20. desember 2025 12:47
Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Aðstandendur fórnarlamba árásanna þann 11. september 2001 hafa árum saman barist fyrir því að fá að lögsækja Sádi-Arabíu vegna meints stuðnings ríkisins við hluta hryðjuverkamannanna. Nýlega birt gögn bandarískra yfirvalda hafa styrkt grunsemdir fjölskyldnanna enn frekar og samhliða halda málaferlin áfram að silast í gegnum dómskerfið, 24 árum eftir atburðina. Innlent 12. desember 2025 10:01
Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Framkvæmdastjóri sádi-arabísku deildarinnar segir félög þar vilja klófesta Mohamed Salah, leikmann Liverpool. Enski boltinn 10. desember 2025 22:45
Gerði lítið úr morðinu á Khashoggi á blaðamannafundi með bin Salman Donald Trump Bandaríkjaforseti gerði lítið úr morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi þegar hann tók á móti Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, í Hvíta húsinu í gær. Erlent 19. nóvember 2025 06:31
Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu Embættismenn innan varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir uggandi yfir sölu F-35 herþota til Sádi Arabaíu, þar sem líkur séu á að Kínverjar gætu nýtt sér tækifærið til að komast yfir tæknina sem vélarnar byggja á. Erlent 14. nóvember 2025 07:43
Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Gervigreindin er orðin það öflug og algeng að fólk þarf að efast um það sem það sér á netinu þótt það líti trúanlega út. Gott dæmi um það er meintur nýr knattspyrnuleikvangur sem átt að byggja fyrir HM í fótbolta 2034. Fótbolti 31. október 2025 06:31
Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas Evrópusambandið, Arababandalagið og sautján aðrar þjóðir hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem Ísrael er hvatt til að samþykkja tveggja ríkja lausnina og kallað er eftir því að Hamas leggi niður vopn sín og láti af stjórn Gasa. Utanríkisráðherra Íslands skrifaði jafnframt undir samstarfssamkomulag milli Íslands og Palestínu. Erlent 29. júlí 2025 23:57
Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Donald Trump og fjölskylda hans eiga í umfangsmiklum viðskiptum í Mið-Austurlöndum og vill forsetinn þar að auki taka við lúxusþotu í gjöf frá konungsfjölskyldu Katar. Flugvélin er metin á um 53 milljarða króna. Hann hefur brugðist reiður við gagnrýni á gjöfina og segist ekkert vita um viðskipti sona sinna á svæðinu. Erlent 14. maí 2025 14:21
Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Donald Trump Bandaríkjaforseti hitti í morgun Ahmed al-Sharaa bráðabirgðaforseta Sýrlands, á fundi í Sádi-Arabíu. Erlent 14. maí 2025 08:37
Yfirvöld Mexíkó kæra Google Yfirvöld í Mexíkó hyggjast kæra tæknifyrirtækið Google fyrir að breyta nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á landakortunum sínum í Bandaríkjunum. Þetta sagði Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó. Erlent 9. maí 2025 18:37
Óvíst að greint verði frá niðurstöðum viðræðna í Sádi Arabíu Nokkur óvissa er uppi með það hvort uppljóstrað verður um niðurstöður viðræðna Bandaríkjamanna og Rússa í Ríad í Sádi Arabíu, þar sem staðan í Úkraínu var til umræðu og möglegt samkomulag um sjóumferð á Svartahafi. Erlent 25. mars 2025 13:12
Rússar sagðir vilja draga viðræður á langinn Bandarískir og rússneskir erindrekar luku í kvöld fundi um mögulegt vopnahlé á Svartahafi milli Rússa og Úkraínumanna. Ráðamenn í Bandaríkjunum vonast til þess að viðræðurnar geti leitt til frekari viðræðna um frið í Úkraínu. Erlent 24. mars 2025 21:40
Segir orkuinnviðasamkomulagið enn í gildi þrátt fyrir stöðugar árásir Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Rússlandi, segir samkomulag um 30 daga bann gegn árásum á orkuinnviði Úkraínu enn í gildi, þrátt fyrir áframhaldandi loftárásir. Erlent 24. mars 2025 10:43
„Reginhneyksli“ að Sádar stýri nefnd um réttindi kvenna Fulltrúi í utanríkismálanefnd Alþingis segir það reginhneyksli að Sádi-Arabía gegni nú formennsku í kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna í ljósi mannréttindabrota landsins á konum. Hann saknar þess að íslensk stjórnvöld láti í sér heyra. Innlent 20. mars 2025 10:52
Úlfurinn gerður að fjárhirði Sádi-Arabía gegnir nú formennsku í kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna, en 69. lota nefndarinnar hófst á dögunum. Skipunin hefur vakið upp háværa umræðu og gagnrýni um allan heim, m.a. frá kvenréttindafrömuðum. Skoðun 20. mars 2025 07:48
Úkraína samþykkir tillögu um vopnahlé Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Úkraínumenn hafi samþykkt tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé og séu tilbúnir að ganga til viðræðna um að stöðva átökin og stuðla að langvarandi friði. Erlent 11. mars 2025 18:30
Bandaríkjamenn og Úkraínumenn funda eftir munnhöggin í Hvíta húsinu Sendinefndir Bandaríkjanna og Úkraínu eru komnar til Sádí-Arabíu en fundur þeirra fer fram á morgun þar sem þess verður freistað að bæta skaddað samband þjóðanna og ræða mögulegt vopnahlé milli Úkraínu og Rússlands. Erlent 10. mars 2025 23:48
Selenskí á fund Bandaríkjamanna í Sádi-Arabíu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir að hann muni funda á ný með Bandaríkjamönnum í Sádi-Arabíu í næstu viku. Erlent 6. mars 2025 23:46