Hljóðið þungt í Dyche: „Það er enginn peningur til“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2024 12:02 Sean Dyche er í erfiðri stöðu hjá Everton. getty/David Rogers Sean Dyche, knattspyrnustjóri Everton, var ekki upplitsdjarfur eftir 4-0 tapið fyrir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann segir að félagið eigi ekki pening til að kaupa nýja leikmenn.
Everton hefur tapað báðum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu, 7-0 samanlagt, og margir spá erfiðu tímabili á Goodison Park. „Þetta hefur verið endalaus áskorun síðan ég kom hingað og það er það eina sem ég þekki hjá Everton,“ sagði Dyche eftir tapið fyrir Spurs. „Þetta heldur bara áfram og áfram og áfram. Þannig er bara staðan hjá félaginu. Ég er raunsær og staðan er erfið hjá Everton. Það eru nokkrar goðsagnir á sveimi. Ein þeirra er um að við ættum að vera í Evrópukeppni. Hvað gerðist síðustu þrjú tímabil? Vorum við ekki að reyna að komast í Evrópukeppni?“ Dyche segir að hann geti ekki leyst vandamál Everton á félagaskiptamarkaðnum. Félagið hafi einfaldlega ekkert milli handanna. „Það er skrítið þegar fólk segir: Af hverju ferðu ekki og kaupir einhvern? Hvað meinarðu, það er ekki til neinn peningur. Það er ekki eins og ég vilji ekki kaupa neinn og safna pening. Þar til einhver segir mér eitthvað annað er þetta það sem við höfum til að vinna með,“ sagði Dyche. Næsti leikur Everton er gegn Bournemouth um næstu helgi.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira