Fjölbreyttar lausnir fyrir íslenskan markað Hýsi 27. ágúst 2024 11:31 Hýsi býður upp á fjölbreyttar lausnir. Þar má helst nefna límtrésbyggingar, bogahús, gámabyggingar, stálgrindahús og Trimo húseiningar. Einnig býður Hýsi upp á heildarlausn þar sem séð er um uppsetningu á húsum í samvinnu við öfluga undirverktaka. Hýsi er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu við byggingariðnaðinn auk þess að sinna almennum fyrirtækjum, sveitafélögum, bændum og landbúnaðarfyrirtækjum og fjölbreyttum hópi ólíkra fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Nýir eigendur tóku við fyrirtækinu í lok árs 2020 en þá hét það Hýsi Merkúr. „Við tókum við mjög góðu búi og höfum verið í markvissu uppbyggingarstarfi síðan þá,“ segir Dagur Indriðason, sölustjóri Hýsi. „Verkefnastaðan undanfarin ár hefur verið mjög góð og viðskiptavinahópur okkar er ansi stór og fjölbreyttur. Við höfum lengi varla náð að anna eftirspurn en helstu vörur okkar eru límtrésbyggingar, bogahús, gámabyggingar, stálgrindarhús og Trimo húseiningar. Fyrirtækið hefur alla tíð átt í löngu og farsælu samstarfi við samstarfsaðila sína, eins og trausta birgja og vandvirka hönnuði, sem er svo sannarlega einn lykill að góðum árangri okkar.“ Dagur Indriðason er sölustjóri Hýsi. Meðal verkefna sem eru í undirbúningi þessar vikurnar, í vinnslu eða ný lokið má nefna flugskýli sem er staðsett í Múlakoti í Fljótshlíð, bogahús á mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð sem gegnir hlutverki verkstæðis- og þjónustuhúss, límtréshús á Hellisheiði fyrir fyrirtæki í orkugeiranum, hesthús og reiðhöll í Rangárþingi Ytra sem einnig er límtréshús og tvö fjárhús fyrir sauðfjárbú svo eitthvað sé nefnt. „Auk þeirra eru fjölmörg önnur fjölbreytt verkefni í gangi þannig að sjá má að Hýsi er að sinna mjög breiðum viðskiptamannahópi með ólíkar lausnir. Einnig má benda á að við erum líka að bjóða upp á heildarlausn þar sem við sjáum um uppsetningu á húsum í samvinnu við öfluga undirverktaka.“ Hýsi tekur einnig þátt í útboðsmarkaði ef það hentar vöruflokkum þeirra segir Dagur. „En annars erum við almennt litlir fiskir í stórri tjörn og kunnum bara vel við það. Byggingargeirinn hér á landi er fullur af alls konar áskorunum en hér er til dæmis meira álag á byggingum en þekkist annars staðar í Evrópu. Það eru því áskoranir að uppfylla allar kröfur og við reynum það eins vel og mögulegt er.“ Starfsfólk Hýsi leggur metnað í að veita viðskiptavinum góða þjónustu að sögn Dags. „Ef viðskiptavinur kaupir hús af okkur leggjum við okkur fram við að veita greinargóðar upplýsingar um vöruna, sendum nákvæmar teikningar í samvinnu við hönnuði og birgja, veitum upplýsingar um hvernig húsið er sett upp og í raun frá öllum smáatriðum. Þannig greinum við okkur frá samkeppnisaðilum okkar þar sem fagleg vinnubrögð og upplýsingagjöf eru í fyrirrúmi og öllu ferlinu fylgt eftir á faglegan hátt.“ Dagur segir starfsfólk Hýsi alltaf vera á tánum ef fram koma nýjar lausnir eða vörflokkar sem þau telji henta íslenska markaðinum. „Við erum alltaf að horfa kringum okkur. Þessar vikurnar erum við til dæmis að skoða eitt gott tækifæri en við getum þó ekki rætt hér. Fyrirtækið er alltaf í vöruþróun þar sem við reynum að gera hlutina betri og ódýrari fyrir viðskiptavini okkar. Það er því lítil stöðnun á þessum markaði enda erum við alltaf að reyna að gera betur í dag en í gær.“ Nánari upplýsingar á vef Hýsi.
Hús og heimili Byggingariðnaður Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Smitten á lista yfir mesta tekjuaukningu á Norðurlöndum Jólagjöfin sem kemur sér alltaf vel Ævintýrið heldur áfram með Discovery! Halda jólin frítt með inneign í appinu Barnamálaráðherra keypti fyrsta Jólaálfinn EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Sjá meira