Olmo tryggði Börsungum sigurinn í sínum fyrsta leik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 27. ágúst 2024 21:30 Olmo er mættur til leiks. Irina R. Hipolito/Getty Images
Barcelona þurfti að koma til baka gegn Rayo Vallecano þegar liðin mættust í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Nýi maðurinn Dani Olmo reyndist hetja gestanna. Heimamenn í Vallecano slógu gestina með blautri tusku strax á 9. mínútu þegar Unai Lopez kom heimaliðinu yfir. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks og gestirnir óvænt undir þegar gengið var til búningsherbergja. Hansi Flick, þjálfari Börsunga, brást við með að setja Olmo inn fyrir Ferran Torres strax í hálfleik. Það átti eftir að skila sér en fyrst jafnaði Pedri metin eftir undirbúning Raphinha. Robert Lewandowski hélt hann hefði komið Barcelona yfir á 71. mínútu en markið var dæmt af vegna brots í aðdraganda þess. Það kom ekki að sök þar sem rúmlega tíu mínútum síðar gaf undrabarnið Lamine Yamal á Olmo sem skoraði og tryggði Barcelona sigurinn í sínum fyrsta leik. FT: #RayoBarça 1-2Barça continue their winning streak with a comeback victory against Rayo! 🔝#LALIGAEASPORTS pic.twitter.com/zBwvGUzhqT— LALIGA English (@LaLigaEN) August 27, 2024 Lokatölur 1-2 og Börsungar með fullt hús stiga að loknum þremur umferðum.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Barcelona nýtir sér meiðsli leikmanns til að skrá Olmo Spænski landsliðsmaðurinn Dani Olmo fær væntanlega að spila með Barcelona í kvöld eftir að félaginu tókst loksins að finna leið til að skrá hann inn hjá spænsku deildinni. 27. ágúst 2024 09:33
Barcelona nýtir sér meiðsli leikmanns til að skrá Olmo Spænski landsliðsmaðurinn Dani Olmo fær væntanlega að spila með Barcelona í kvöld eftir að félaginu tókst loksins að finna leið til að skrá hann inn hjá spænsku deildinni. 27. ágúst 2024 09:33
Leik lokið: Ísland - Ítalía 71-95 | Ítalir ekki í vandræðum þrátt fyrir fjarveru lykilmanna Körfubolti
Leik lokið: Ísland - Ítalía 71-95 | Ítalir ekki í vandræðum þrátt fyrir fjarveru lykilmanna Körfubolti