Náðu líkamsárás á myndband Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 31. ágúst 2024 07:13 Þónokkuð var um slagsmál í miðborginni í nótt. Vísir/Vilhelm Myndband náðist af hópi manna ráðast á einn á fimmta tímanum í nótt. Mennirnir flúðu vettvang en málið er nú í rannsókn. Mikið var um útköll tengd ölvun hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu eftir nóttina. Þrír ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis. Einn er jafnframt grunaður um akstur án ökuréttinda og önnur umferðarbrot. Allir voru látnir lausir að lokinni sýnatöku. Fram kemur í dagbókinni að mikið hafi verið um slagsmál niðri í miðbæ í nótt. Tilkynnt var um hópslagsmál til að mynda klukkan 3:45 auk líkamsárásarinnar sem talin er upp hér að ofan. Þá barst lögreglu tilkynning um ungan mann aka golfbíl um götur bæjarins en frekari upplýsingar um málið fylgja ekki. Rétt eftir miðnætti var lögregla kölluð út vegna einstaklings sem sat utan við krá og var að ónáða gesti og gangandi í kring um staðinn. Eftir að lögregla hafði gert tilraun til að vísa manninum brott eða bjóðast til að keyra hann annað án árangurs var ákveðið að hann yrði vistaður í fangageymslu sökum ástands. Þá var lögregla kölluð til vegna annars ofurölvi, sem var til ama fyrir utan skemmtistað. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð til viðræðna og honumm gefið tækifæri að fara heim í bólið. Maðurinn fór hins vegar rakleiðis aftur á sama skemmtistað og lét ekki af hegðuinni. Hann var því handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Lögreglumál Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira