Þetta sagði Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins í upphafi ræðu sem hann flytur á Flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fer fram á hótel Hilton í dag. Hann sagðist ekki annað geta en byrjað á að ræða það „sem allir eru að hugsa um.“
Fylgi flokksins hefur undanfarna mánuði hægt og rólega minnkað og mældist nú síðast í skoðanakönnun Maskínu 13,9 prósent. Flokkurinn er þar með kominn undir Miðflokkinn, sem mældist með 15,3 prósent, þó munurinn sé ekki marktækur.
Ungir sjálfstæðismenn eru uggandi yfir stöðunni, eins og líklega fleiri innan flokksins, en þeir birtu heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í morgun þar sem bent var á stöðuna og forystan spurð hvernig bregðast eigi við. Eins sagði Vilhjálmur Árnason ritari flokksins í viðtali á Bylgjunni í gær að staðan sé óviðunandi.
Enginn ber meiri ábyrgð á því en ég sem formaður flokksins, þetta er alveg skýrt og sjálfsagt. Við látum skoðanakannanir ekki stjórna störfum okkar en við leiðum þær heldur ekki hjá okkur eða reynum að gera lítið úr þeim,“ sagði Bjarni.
„Fylgið hefur lækkað, fylgið er óviðunandi. Við því verður að bregðast. Kannanir eru hins vegar ekki forlög eða óumflýjanleg niðurstaða, það sanna dæmin. Síðast í sumar í forsetakosningunum, að skoðanakannanir gefa vísbendingu um stöðuna á einum tímapunkti en eru ekki ávísun á niðurstöðu í kosningum. Ég lít svo á að staðan sé opin.“
Segir flokkinn hafa haft skýrt umboð
Hann segir alla vita að það gerist ekki að sjálfu sér. Því sé spurningin sú hvernig sjálfstæðismenn ætli að bregðast við stöðunni.
„Hvað gera íþróttalið sem mæta mótbyr og ganga í gegnum erfið tímabil? Við leggjumst ekki flöt á völlinn og bendum fingrum. Við snúum bökum saman og náum tökum á stöðunni. Allt byrjar á því, án þess gerist ekki neitt. Sundurleitur ósamstæður hópur nær aldrei neinum árangri. Um það vitnar stjórnmálasaga vinstri flokkanna á Íslandi.“
Hann segist hafa heyrt að ríkisstjórnarsamstarfið skaði flokkinn og honum takist ekki að koma málum sínum á framfæri. Hann skilji hvað átt sé við en minnir á að fyrir síðustu kosningar hafi ríkisstjórnarflokkarnir þrír - Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Vinstri græn - sagst vilja halda samstarfi áfram og hafi fengið til þess umboð.
„Eftir því var hreinlega kallað. Stjórnarandstaðan var í molum. Enda kom það upp úr kössunum, enn og aftur, við fengum flest atkvæði. Skýrt umboð og við tókum áframhaldandi ábyrgð á stjórn landsins í samstarfi við þessa flokka.“