Lífið

Ó­þrjótandi og ríku­leg undra­ver­öld Ís­lands

Jakob Bjarnar skrifar
Raxi og Ingólfur Arnarsson yngri að skoða undur Íslands eins og fuglinn fljúgandi. Fágæt innsýn og í mörgum tilfellum áður óséð náttúrufyrirbæri.
Raxi og Ingólfur Arnarsson yngri að skoða undur Íslands eins og fuglinn fljúgandi. Fágæt innsýn og í mörgum tilfellum áður óséð náttúrufyrirbæri. vísir/rax

Ragnar Axelsson – Raxi – er ljósmyndari á heimsmælikvarða, óþreytandi að að festa mannlíf og landslag á filmu. Til að komast í tæri við áður óséð undur Íslands prílaði Raxi við annan mann upp í flugvél sína og ljósmyndar það sem fyrir augu ber, með augum fuglsins.

„Já, þetta er flugvélin mín. Ég á tvær. Ég tek mikið vídeó og rek þá vélina út með priki. Þetta er eins og fugl að taka mynd. Tæknin er orðin slík að það má stroka prikið út,“ segir Raxi og reynir að lýsa þessum undrum öllum fyrir blaðamanni Vísis. Vísir ætlar að birta með reglubundum hætti afrakstur ferða Raxa og þar er mörg stórmerkin að líta.

Það er rigning og myrkur og meinlegir skuggar á Mýrdalssandi og regnbogi.vísir/rax

Með Raxa í för að þessu sinni er frændi hans. „Ingólfur Arnarson Jr. landkönnuður,“ segir Raxi í gamansömum tóni. Hann segir ekki hægt að fara einn og Ingólfur sé flugmaður hjá Icelandair. 

Mælifell í öllu sínu veldi.vísir/rax

Raxi vill ekki kannast við að hann sé ljósmyndari að atvinnu, hann segir þetta lífsstíl. 

„Á góðum degi á flugi yfir Íslandi, er stundum eins og að vera í öðrum heimi. Þegar horft er á landið með augum fuglsins má finna allskonar form og munstur í landinu sem allt of fáir sjá.“

Skrauti.vísir/rax

Sumarið í ár hefur verið með endemum, líklega eitthvert það versta sem menn muna. En Raxi lætur það ekki á sig fá.

„Þó að veðrið hafi spilað stórt hlutverk í sumar og flugdagar fáir þá kemur einn og einn dagur þar sem birtir til og lífið fær lit. Þeir eru margir staðir á landinu þar sem þessi undraveröld birtist með sínum formfögru línum í landslaginu, einhverskonar abstrakt og kynjamyndir birtast. Sumt er mannana verk, annað er náttúran í sinni tærustu mynd.“

Gígur frá eldsumbrotunum á Reykjanesi.vísir/rax

Og Raxi spyr hvernig Kjarval hefði málað landið hefði hann haft flugvél?

„Já, eða einhver af abstrakt málurum heimsins. Birtan er síbreytileg þar sem hún dansar við fjöllin og náttúru landsins.“

Raxi segir undraveröld Ísland í raun óþrjótandi og eigi fáa sinn líka.

„Á komandi vikum munum við leitast við að fljúga yfir Ísland og deila þeim hughrifum sem landið gefur þar sem frelsi fuglsins nýtur sín,“ segir Raxi sem einnig hyggur á sérstaka ferð til Grænlands.

Blávatn á Mýrdalsjökli.vísir/rax

Við skulum leyfa myndum úr safni Raxa, en þó aðeins broti, að tala sínu máli:

Á Suðurlandi milli Hellu og Hvolsvallar.vísir/rax

Heyskapur á Suðurlandi.vísir/rax

Þetta gæti allt eins verið abstrakt málverk en hér er linsa meistarans að verki.vísir/rax

Leyndardómsfullt hálendið sýnir sig en aðeins að hluta.vísir/rax

Ljósmyndarinn sér óteljandi form og myndir úr óræðum jöklinum.vísir/rax

Á flugi yfir Íslandi. Hér sést hvernig jöklarnir hopa.vísir/rax





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.