Lífið

Ræðst á morgun hvort Ís­land taki þátt í Euro­vision

Bjarki Sigurðsson skrifar
Reynsluboltinn Hera Björk lét tæknivandræði ekki trufla sig og stóð uppi sem sigurvegari í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2024.
Reynsluboltinn Hera Björk lét tæknivandræði ekki trufla sig og stóð uppi sem sigurvegari í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2024. Vísir/Hulda Margrét

Ríkisútvarpið mun á morgun tilkynna hvort Ísland muni taka þátt í Eurovision í Basel á næsta ári. Fararstjóri íslenska hópsins sagði eftir keppnina í ár að hann gerði ráð fyrir því að Ísland tæki aftur þátt í ár, en ekkert væri meitlað í stein.

Mikil óánægja var meðal hluta þjóðarinnar eftir þátttöku Íslands í keppninni í ár. RÚV og fleiri sjónvarpsstöðvar voru hvattar til að draga atriði sitt úr keppni vegna þátttöku Ísraels og báðu Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) fólk um að hætta að áreita keppendur vegna þátttöku þeirra. 

Fulltrúi Íslands, Hera Björk, tók hins vegar þátt og lenti í síðasta sæti keppninnar með þrjú stig. Gunna Dís sá um að lýsa keppninni í stað Gísla Marteins Baldurssonar sem hætti við að lýsa vegna framgöngu Ísraela á Gasa. 

Eftir keppnina, sem svissneska atriðið vann, sagði fararstjóri íslenska hópsins, Rúnar Freyr Gíslason, að þátttaka Ísraela hafi haft neikvæð áhrif á keppnina. Hún hafi ekki verið sá sameiningarvettvangur sem hún á að vera. Hann sagðist gera ráð fyrir því að Ísland tæki þátt aftur á næsta ári en það væri alls ekkert staðfest.

Rúnar segir í dag í samtali við fréttastofu að á morgun verði ákvörðun Ríkisútvarpsins um þátttöku Íslands í Eurovision kynnt þjóðinni. Þá verður fyrirkomulag Söngvakeppninnar kynnt og væntanlega dagsetningar um hvenær listamenn geta sent inn atriði og fleira.

Nú þegar hafa 25 ríki staðfest að þau taki þátt í keppninni sem fer fram í Basel í Sviss á næsta ári. Þar á meðal eru öll hin Norðurlöndin og Ísrael. Eina ríkið sem hefur staðfest að það taki þátt á næsta ári en tók ekki þátt í ár er Svartfjallaland sem snýr aftur eftir tveggja ára hlé.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×