Lífið

Stjörnulífið: Brúð­kaups­af­mæli á hlaupum og loka­tón­leikar Lauf­eyjar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnulífið er vikulegur liður á Lífinu á Vísi.
Stjörnulífið er vikulegur liður á Lífinu á Vísi.

Föstudagurinn þrettándi, litadýrð haustsins, tímamót og utanlandsferðir lituðu samfélagsmiðla hjá stjörnum landsins í liðinni viku.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Haustið í uppáhaldi

Haustið fer vel af stað hjá Ástrós Traustadóttur, áhrifavaldi og raunveruleikastjörnu. 

Tveggja ára brúðkaupsafmæli

Linda Benediktsdóttir matarbloggari og eiginmaður hennar Ragnar Einarsson fögnuðu tveggja ára brúðkaupsafmæli sínu í Kaupmannahöfn um helgina þar sem þau tóku þátt í hálfu maraþoni.

Missti vitið og leitar enn

Guðmundur Emil einkaþjálfari segist vera búinn að missa vitið.

Föstudagurinn þrettándi

Tískudrottningin og athafnakonan Elísabet Gunnarsdóttir bauð í partý í Borgartúni síðastliðinn föstudag þegar opnun kaffiverslunarinnar Sjöstrand var fagnað með glæsibrag.

Tískuvikan í New York

Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi kíró, birti flottar myndir af sér frá tískuvikunni í New York. Óhætt að segja að hann sé maður með alvöru stíl!

Flutningar erlendis

Tónlistarkonan Sigga Ózk er flogin á vit ævintýrana í Noregi.

Heilluð af Grænlandi

Áhrifavaldurinn og ljósmyndarinn Ása Steinars birti flottar myndir frá Grænlandi.

Hús að heimili

Tanja Ýr Ástþórsdóttir, athafnakona og áhrifavaldur, og kærastinn hennar Ryan eru á fullu í framkvæmdum þar sem þau eru að gera upp hús í Bretlandi. Tanja gefur fylgjendum sínum á Instagram innsýn inn í ferlið.

Ástfangin á ferðalagi

Áhrifavaldarnir Arnar Gauti, betur þekktur sem Lil Curly, og Brynja Bjarna Anderiman njóta lífsins saman á ferðalagi um Californíu.

Lífið í LA 

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson birti filmu frá lífinu í Los Angeles.

Vinkonur í Króatíu

Áhrifavaldurinn Guðrún Svava Egilsdóttir, gjarnan þekkt sem Gugga í gúmmíbát, fór í vinkonuferð til Króatíu.

Síðustu tónleikarnir

Grammy verðlaunahafinn Laufey Lín endaði ævintýralegt tónleikaferðalag í Sydney í Ástralíu í gær. Hún hefur spilað fyrir fullum tónleikasölum um allan heim síðastliðið ár. 

Falleg fjölskylda

Móeiður Lárusdóttir eiginkona knattspyrnukappans Harðar Björgvins Magnússonar birti fallegar myndir af þeim ásamt dætrum þeirra í sólinni á Grikklandi.

Berar bumbuna

Jógagyðjan Eva Dögg Rúnarsdóttir beraði bumbuna á matarmarkaði í Frakklandi.

Ágúst-yfirferð

Kristín Pétursdóttir leikkona rifjaði upp ágúst mánuð með skemmtilegri myndaveislu.

Ný plata

Tónlistarmaðurinn Aron Can birti lagalistann á nýju plötunni sinni, Þegar ég segi monní. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: „Reynum að koma heilir til baka“

Haustið er formlega gengið í garð og heiðraði höfuðborgarbúa með gulri veðurviðvörun um helgina. Stjörnur landsins létu veðrið ekki stoppa sig og skemmtu sér á tónleikum, í brúðkaupum eða í veiði.

Stjörnulífið: Maraþon, ástin og seiðandi kroppar í sólinni

Liðin vika var með eindæmum viðburðarrík hjá stjörnum landsins. Mannlífið iðaði um helgina þar sem Menningarnótt var haldin hátíðlega með fjölbreyttri dagskrá. Sömuleiðis reimuðu fjölmargir á sig hlaupaskóna og tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Þá var ástin og rómantíkin áberandi á samfélagsmiðlum. 

Stjörnulífið: Stjörnubrúðkaup og Áslaug Arna í golfi

Síðastliðin vika var afar viðburðarrík hjá stjörnum landins. Ungfrú Ísland var krýnd í Gamla bíói síðastliðið miðvikudagskvöld, ástin umvafði helgina með stjörnubrúðkaupum og sólin lét sjá sig í höfuðborginni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.