Elías varði mark meistaranna í endurkomusigri á FC Kaupmannahöfn Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. september 2024 17:55 Elías Rafn eyddi síðasta tímabili á láni en er orðinn aðalmarkmaður Midtjylland. Midtjylland jók forskot sitt í efsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri gegn FC Kaupmannahöfn. Elías Rafn Ólafsson varði mark heimamanna en Rúnar Alex Rúnarsson sat á bekk gestanna.
Midtjylland er ríkjandi meistari eftir æsispennandi endasprett á síðasta tímabili. FCK hafði unnið titilinn tvö ár á undan. FCK komst yfir í leiknum með marki Kevin Diks af vítapunktinum, liðið hélt svo að það hefði bætt við á 60. mínútu þegar Magnus Mattsson kom boltanum í netið, en eftir myndbandsskoðun var markið dæmt af. Heimamenn í Midtjylland hresstust við það og skoruðu jöfnunarmarkið skömmu síðar. Samspil fyrirliðanna tveggja sem skilaði því. Fyrirliðinn Mads Bech Sörensen með sendingu á varafyrirliða sinn, Oliver Sörensen, sem kom boltanum í netið. Undir lokin lagði Midtjylland mikið kapp í að sækja sigurinn og sendi miðvörðinn Ousmane Diao fram völlinn. Það skilaði sér í marki á 79. mínútu eftir mikið klafs í teignum. Ousmane Diao skoraði sigurmarkið fyrir Midtjylland. FCK gerði hvað það gat til að jafna leikinn en átti ekki erindi sem erfiði og Midtjylland vann 2-1 eftir að hafa lent undir. Midtjylland er í efsta sæti deildarinnar með 20 stig eftir 8 leiki. FCK er í 4. sætinu með 14 stig eftir 8 leiki. Bæði lið hafa spilað einum fleiri leik en liðin í kring.
Danski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Fleiri fréttir Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Sjá meira