Tíska og hönnun

Best klæddu stjörnurnar á Emmy verð­laununum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stjörnurnar skinu skært á rauða dreglinum í gær.
Stjörnurnar skinu skært á rauða dreglinum í gær. SAMSETT

Stjörnurnar skinu skært í hátísku á rauða dreglinum í gærkvöldi. Tilefnið var Emmy verðlaunahátíðin sem fór fram í nótt í Peacock leikhúsinu í Los Angeles. 

Mjúkir pastellitir vöktu athygli sem og sterkari litapalletur á borð við eldrauðan. Þá völdu margir að klæðast silfri en leikkonan Christine Baranski bar af í gylltum Oscar de la Renta síðkjól. 

Christine Baranski glæsileg í Oscar de la Renta galakjól.Kevin Mazur/Getty Images
Simona Tabasco í nýstárlegum galakjól frá Marni. Gilbert Flores/Variety via Getty Images
Q úr RuPaul's Drag Race skein skært í þessum tryllta sérhannaða kjól.Amy Sussman/Getty Images
Brie Larson í stílhreinum dökkbláum kjól frá Chanel.Amy Sussman/Getty Images
Eiza González er ljósbleikur draumur í kjól og fjaðrajakka frá Tamara RalphKevin Mazur/Getty Images
Maya Erskine í drapplituðum blómakjól frá Rodarte.Monica Schipper/GA/The Hollywood Reporter via Getty Images
Anna Sawai rosaleg í rauðu frá Veru Wang.Amy Sussman/Getty Images
Goðsögnin Kristin Scott Thomas í pastel fjólubláu frá Miu Miu.Frazer Harrison/Getty Images
Ayo Edebiri bar af í Bottega Veneta. Frazer Harrison/Getty Images
Jeremy Allen White huggulegur í Calvin Klein.Amy Sussman/Getty Images
Stórleikkonan Gillian Anderson skein skært í silfurkjól frá Emiliu Wickstead.Amy Sussman/Getty Images
Bowen Yang í kremuðum jakkafötum frá Bode.Kevin Mazur/Getty Images
Kristen Wiig í frumlegum og ótrúlega töff kjól frá Oscar de la Renta.Amy Sussman/Getty Images
Jennifer Aniston í Oscar de la Renta síðkjól og smáatriðin algjörlega tryllt.Kevin Mazur/Getty Images
Meryl Streep æðisleg í ljósbleikri dragt frá Alexander McQueen.Amy Sussman/Getty Images
Paulina Alexis geislaði í Christian Siriano síðkjól.Frazer Harrison/Getty Images
Stjörnuparið Sarah Paulson og Holland Taylor, Sarah í Prada og Holland í Louis Vuitton.Amy Sussman/Getty Images
Reese Witherspoon í Dior síðkjól í svörtu og hvítu.Kevin Mazur/Getty Images
Viola Davis í trylltum tvískiptum galakjól frá Zuhair Murad.Amy Sussman/Getty Images
Kourtney Kardashian og Travis Barker svartklædd í stíl.Gilbert Flores/Variety via Getty Images
Ella Purnell silfurskvísa í gellukjól frá Rabanne.Kevin Mazur/Kevin Mazur/Getty Images
Rísandi stjarnan Nava Mau í glansandi rauðum kjól frá Gigi Goode úr RuPaul's Drag Race.Frazer Harrison/Getty Images
Alan Cumming flottur á því!Kevin Mazur/Getty Images
Maya Rudolph í rólegri litapallettu frá Chloé.Kevin Mazur/Getty Images
Flottir feðgar! Dan Levy í Loewe og Eugene Levy.Kevin Mazur/Kevin Mazur/Getty Images
Selena Gomez í svörtum síðkjól frá Ralph Lauren með silfruð smáatriði.Amy Sussman/Getty Images
Dakota Fanning algjör perla í fitti frá nýrri hátískulínu Giorgio Armani.Frazer Harrison/Getty Images
Saoirse Ronan með bert á milli í Louis Vuitton.Amy Sussman/Getty Images
Andrew Scott í æðislegum jakkafötum frá tískudrottningunni Vivienne Westwood.Amy Sussman/Getty Images)
Aaron Moten æðislegur í rauðu en hann er giftur hinni íslensku Lilju Rúriksdóttur.Amy Sussman/Getty Images

Tengdar fréttir

Þakkaði fyrir sig á íslensku

Bandaríska stórleikkonan Jodie Foster þakkaði sérstaklega fyrir sig á íslensku þegar hún tók við Emmy verðlaununum í nótt fyrir hlutverk sitt í spennuþáttunum True Detective: Night Country. Eins og alþjóð veit voru þættirnir að mestu teknir upp á Dalvík.

Shogun á spjöld sögunnar á Emmy verðlaunahátíðinni

Sjónvarpsþáttaseríur líkt og Shogun, The Bear og Baby Reindeer voru meðal þeirra sería sem hlutu flest verðlaun á Emmy verðlaunahátíðinni sem fram fór í nótt. Hver sería um sig fékk fjögur verðlaun.

Hafdís segir Emmy tilnefninguna „smá súrrealíska“

Förðunarfræðingurinn Hafdís Pálsdóttir skein skært á Emmy verðlaununum um síðustu helgi þar sem hún og teymið hennar fengu tilnefningu. Blaðamaður ræddi við hana um ferilinn, tilnefninguna og stóra kvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.