Innlent

Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suður­lands­vegi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Lögregla flutti manninn á bráðamóttökuna.
Lögregla flutti manninn á bráðamóttökuna. Aðsend

Maður sem gekk nakinn eftir Suðurlandsvegi milli Rauðhóla og afleggjarans að Hólmsheiðis var fluttur af lögreglu á bráðamóttökuna vegna andlegs ástands. 

Lögreglunni barst tilkynning rétt fyrir 13 í dag um tvo nakta menn sem voru að baða sig í Hólmsá. 

„Þegar lögregla kemur á staðinn er annar þeirra kominn nakinn upp á veg og þannig ástand á honum að það var farið með hann á bráðamóttökuna, frekar vegna andlegs ástands en annars, til að hann fengi viðeigandi þjónustu,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri. 

Á myndböndum má sjá mennina ganga eftir veginum og fyrir bílana, annar kviknakinn en en hinn ber að ofan, berfætur og í buxum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×