Fótbolti

Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mikel Arteta var stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir að liðið hafi ekki náð að tryggja sér stigin þrjú.
Mikel Arteta var stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir að liðið hafi ekki náð að tryggja sér stigin þrjú. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var stoltur af sínum mönnum eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Englandsmeisturum Manchester City í dag, þrátt fyrir að liðið hafi misst frá sér forystuna á lokasekúndum leiksins.

Arsenal og Manchester City gerðu 2-2 jafntefli á Etihad í dag í leik þar sem John Stones jafnaði metin fyrir heimamenn í City á áttundu mínútu uppbótartíma. Skytturnar í Arsenal voru hársbreidd frá því að halda út, þrátt fyrir að leika stóran hluta leiksins manni færri.

„Ég er ótrúlega stoltur af mínu liði,“ sagði Arteta í viðtali eftir leikinn. „Við spiluðum þennan leik við erfiðar kringumstæður. Við vorum að spila á móti besta liði heims.“

Gestirnir í Arsenal þurftu að leika allan seinni hálfleikinn manni færri eftir að Leandro Trossard fékk sitt annað gula spjald í uppbótartíma fyrri hálfleiks, og þar með rautt. Trossard fékk fyrra gula spjaldið fyrir að sparka boltanum í burtu eftir að dómari leiksins, Michael Oliver, hafði dæmt aukaspyrnu, og seinni gula spjaldið fékk hann fyrir brot á Bernardo Silva áður en hann sparkaði boltanum svo aftur í burtu eftir að búið var að flauta.

„Eftir það sem gekk á í upphafi leiks komumst við í 2-1. Svo fáum við þetta rauða spjald og þá varð þetta allt annar leikur. Ég vil helst ekki ræða frekar um það.“

„Það er augljóslega kraftaverk að við höfum spilað manni færri í 56 mínútur á Etihad. Það sem við gerðum í dag var ótrúlegt.“

„Það er augljóst hvað gerðist þegar þair tóku þessa ákvörðun, en þetta er eitthvað sem ég ætla ekki að eyða orku í að tala um. Ég vil ekki skemma neitt meira utan vallar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×