Sport

Dag­skráin í dag: Sjáðu City í deildabikarnum

Valur Páll Eiríksson skrifar
City verður í eldlínunni.
City verður í eldlínunni. Michael Regan/Getty Images

Hæglátur þriðjudagur er fram undan í sportinu en þó leikið í enska deildabikarnum. Manchester City á leik fyrir höndum í kvöld. Vikulegt uppgjör á NFL-deildinni er þá á sínum stað.

Vodafone Sport

Manchester City mætir Watford í enska deildabikarnum klukkan 18:45 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Vodafone Sport og hefst útsending klukkan 18:40.

Hafnaboltaáhugamenn geta þá fylgst með leik Pirates við Brewers í MLB-deildinni síðar í kvöld en sá hefst klukkan 22:30 á sömu rás.

Stöð 2 Sport 2

Þriðja umferð NFL-deildarinnar kláraðist í gær með leikjum Buffalo Bills og Jacksonville Jaguars og Cincinnati Bengals við Washington Commanders.

Að venju munu þeir Andri Ólafsson, Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Henry Birgir Gunnarsson gera umferðina upp af sinni alkunnu snilld í Lokasókninni. Hún hefst klukkan 20:00 á Stöð 2 Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×