Innlent

Á­lyktun um stjórnar­slit á dag­skrá hjá VG

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fyrir utan Bessastaði.
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fyrir utan Bessastaði. Vísir/Vilhelm

„Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 4. til 6. október 2024 ályktar að tímabært sé að horfa til þess að slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.“

Þetta kemur fram í ósamþykktum drögum að ályktunum fyrir landsfund Vinstri Grænna frá mál­efna­hóp­um og fé­lög­um til umræðu og af­greiðslu á lands­fundi Vinstri­hreyf­ing­ar­inn­ar – græns fram­boðs. .

Þar segir að ríkisstjórnin hafi upphaflega verið mynduð árið 2017 í kjölfar óvæntra kosninga og í skugga pólitísk óróa. Tekið er fram að festa hafi komist á undir forystu VG en nú séu hins vega brýn verkefni fram undan og mat landsfundar að ekki sé unnt að takast á við þau í núverandi stjórnarsamstarfi.

Sjálfstæðisflokkurinn tryggi hagsmuni fjármagnsins

Andrés Skúlason, Auður Alfífa Ketilsdóttir, Einar Ólafsson, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, Halla Gunnarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Saga Kjartansdóttir, Steinunn Rögnvaldsdóttir og Sveinn Máni Jóhannesson eru undirrituð fyrir ályktuninni. Andrés og Helgi Hlynur sitja í stjórn VG.

„Hvort sem litið er til náttúruverndar, samfélagsmála eða efnahagsstjórnar þá er það svo að samstarfsflokkar hreyfingarinnar í ríkisstjórn, og þá einkum Sjálfstæðisflokkurinn, hafa að of miklu leyti farið þá leið að tryggja hagsmuni fjármagnsins, á kostnað almennings. 

Lausna er leitað í einkavæðingu, niðurskurðarstefnu og óheftri stóriðjustefnu, sem allt gengur gegn stefnu Vinstri grænna. Samhliða hefur Sjálfstæðisflokkurinn áfellst fólk fyrir að flýja stríð og gert innflytjendur almennt að blóraböggli fyrir slæmri efnahagsstjórn og vanrækslu innviða,“ segir í ályktuninni.

Hvetja til þess að boðið verði til kosninga

Við þessu verður ekki unað að mati undirritaðra og tekið fram að hreyfingin geti ekki átt aðild að ríkisstjórnarsamstarfi þar sem ólíklegt sé að hægt verði að takast á við knýjandi verkefni framundan. 

„Landsfundur hvetur því til þess að boðað verði til kosninga. Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs áréttar stefnu hreyfingarinnar og  býður upp á framtíðarsýn fyrir Ísland þar sem fólk er sett í fyrsta sæti og fjármagnið látið mæta afgangi. 

Hvort sem Vinstri græn verða innan eða utan ríkisstjórnar eftir næstu kosningar mun hreyfingin hafna einkavæðingu og útlendingaandúð og vinna að mannréttindum, kvenfrelsi og félagslegu réttlæti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×