Húsið var byggt árið 1923 og býr yfir mikilli sögu. Um 1930 var þar meðal annars fyrsta starfrækta reykhúsið í Reykjavík, þar sem Hjalti Lýðsson kaupmaður reykti síld. Seinna meir var húsið notað sem bílaverkstæði og síðar listgallerí. Á undanförnum fjórum árum var húsinu breytt úr iðnaðarhúsi í heillandi sérbýli.
Heillandi hönnun og fagurfræði
Eignin er 190 fermetrar að stærð með allt að sex metra lofthæð og 20 fermetra þaksvölum. Það má segja að ákveðinn stórborgar fílingur sé yfir húsinu.
Pétur Maack arkitekt sá um endurhönnun hússins þar sem upprunalegur byggingarstíll hefur verið varðveittur með nútímalegum endurbótum. Heimilið er innréttað í hlýlegum Japandi stíl, þar sem náttúrulegur efniviður, látlaus litapalletta og fagurfræði ræður ríkjum.
Eldhús, stofa og borðstofa er í opnu og björtu rými með gólfsíðum gluggum. Í eldhúsinu er sérsmíðuð innrétting í hnotu með stein á borðum. Fyrir miðju er vegleg eldhúseyja með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu.
Steypt baðkar og náttúruleg birta
Úr alrýminu er gengið inn í rúmgóða hjónasvítu með stóru fataherbergi. Inn af herberginu er stórt baðherbergi með steyptu baðkari og og flísalögðum sturtuklefa. Fyrir ofan sturtuna má sjá hringlaga loftglugga sem hleypir náttúrulegri birtu inn í rýmið. Innréttingin er sérsmíðuð úr steini, og áferð hennar myndar skemmtilega andstæðu við veggina sem eru í sinni upprunalegu mynd.