Lífið samstarf

Ný vetrarlína Moomin væntan­leg í tak­mörkuðu upp­lagi

Ásbjörn heildsala
Moomin vetrarlínan kemur í takmörkuðu upplagi í verslanir á Íslandi föstudaginn 11. október.
Moomin vetrarlínan kemur í takmörkuðu upplagi í verslanir á Íslandi föstudaginn 11. október.

Skíðastökk er heiti vetrarlínu Moomin Arabia árið 2024. Línan sýnir Múmínsnáða á harðastökki á skíðum og inniheldur krús og skál auk fleiri fallegra muna t.d. sængurföt og handklæði í stíl. Línan verður aðeins fáanleg í takmörkuðu upplagi á Íslandi frá föstudeginum 11. október 2024.

Hvort sem þú skellir þér á skíði eða ekki jafnast fátt á við að sötra eitthvað heitt á köldum vetrardegi. Kakó með rjóma eða heit súpa með ristuðum hnetum, vetrarborðbúnaðurinn frá Moomin Arabia bragðbætir kaffi-og matartímann svo um munar. Vetrarlínan í ár inniheldur bakka, servíettur og fleira fallegt í stíl við hinn sígilda borðbúnað.

Á myndskreytingunni sést hvernig Múmínsnáði er þegar í lausu lofti í æsilegu skíðastökki.

Sjáðu magnað skíðastökk Múmínsnáða

Vetrarlínan heldur áfram með kunnuglegt vetraríþróttaþema síðustu tveggja ára, nú með skíðastökki Múmínsnáða. 

Myndskreytingin sækir innblásur í myndasögu Tove Jansson frá árinu 1955, Vetrarleikarnir, þar sem íbúar Múmíndals slá til allsherjar Vetrarleika. Í tilraun til þess að ganga í augun á Snorkstelpunni, tekur Múmínsnáði þátt í keppni í skíðastökki. Eftir að hún áttar sig á því hve hættulegt slíkt getur verið, reynir Snorkstelpan að stöðva Múmínsnáða en það er um seinan. Á myndskreytingunni sést hvernig Múmínsnáði er þegar í lausu lofti.

Fátt jafnast á við kakó með rjóma eða heita súpa með ristuðum hnetum úr Moominbolla.

Snorkstelpan, Mía litla og Skuggi ásamt hópi íbúa Múmíndals fylgjast kvíðin með. Jafnvel þótt stökkið endi með brotlendingu á grenitrjátoppunum, er það tilkomumikil sjón!

Vetrarlínan verður enn stærri með mjúku líni fyrir bað- og svefnherbergi

Línan inniheldur gesta- og baðhandklæði ásamt sængurfatnaði.

Vetrarlína Moomin Arabia hefur hingað til verið takmörkuð við borðbúnað en í ár má finna í henni textíl fyrir bæði bað- og svefnherbergi í sama ævintýralega vetrarþema. Línan inniheldur gesta- og baðhandklæði ásamt sængurfatnaði í sömu bláu litum og borðbúnaðurinn. Textílvörurnar eru gerðar úr 100% lífrænni bómull.

Textílvörurnar eru gerðar úr 100% lífrænni bómull.

Vetrarlína ársins 2024 er væntanleg í íslenskar verslanir föstudaginn 11. október en vörurnar verða m.a. fáanlegar á ibudin.is eða á helstu sölustöðum Moomin á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.