Lífið

Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í út­löndum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Liðin vika var stútfull af ævintýrum hjá stjörnum landsins.
Liðin vika var stútfull af ævintýrum hjá stjörnum landsins.

Konunglegar heimsóknir og brúðkaup voru meðal þess sem bar hæst í vikunni sem leið hjá stjörnum landsins. Það hefur ekki farið framhjá neinum að það hefur kólnað allhressilega á landinu og jörðin víðast hvar orðin hvít. Það er ekki að sjá hjá mörgum stjörnum sem eru í sólinni í útlöndum.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Stjörnubrúðkaup

Íris Tanja Flygenring fagnað ástinni í brúðkaupi vinkonu sinnar, leikkonunnar Maríu Thelmu Smáradóttur Steinars Thors um helgina.

Blómleg á frumsýningu

Aníta Briem leikkona fagnaði vel í vikunni enda Ráðherrann 2 loksins mættur á skjáinn. 

Opinber heimsókn til Kaupmannahafnar

Halla Tómasdóttir forseti Íslands fór í sína fyrstu opinberu heimsókn í vikunni til Kaupmannahafnar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra lét sig ekki vanta í konungshöllina.

Á ferð um landið

Embla Wigum förðunarfræðingur sýndi nýja kærastanum Theo Kontos um landið.

Vinkonudeit af betri gerðinni

Salka Sól Eyfeld fór í vinkonuferð í Bláa Lónið.

Sólsetur á Spáni

Helgi Ómars er staddur í fríi á Spáni ásamt unnusta sínum Pétri Sveinssyni.

Bumba í sólinni

Eva Dögg Rúnarsdóttir jógagyðja beraði fallegu óléttukúluna í sólinni í Frakklandi.

Ítalskur draumur

Arnar Gauti, þekktur sem Lil Curly, naut lífsins í Gin mare á Ítaliu ásamt lögmanninum Villa Vill og fleiri góðum félögum.

Forsíðuviðtal hjá Time

Stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir fór í viðtal hjá bandaríska tímaritinu Time.

Telur niður dagana 

Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur og áhrifavaldur, telur niður dagana í soninn. Hún á von á sínu öðru barni á næstu dögum með eiginmanni sínum, Markusi Wasserbaech.

Tónleikar í Seattle

Tónlistarkonan Bríet Isis hélt tónleika í Seattle í Bandaríkjunum og kíkti í leiðinni á hinn íkoníska tyggjóvegg.

Afmælið óvænt Brúðkaup

Brynja Dan Gunnarsdóttir,varaþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunnar, fagnaði ástinni í óvæntu brúðkaupi vina sinna um helgina.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: „Virkilega slæm vika fyrir all my haters“

Fallegt haustveður, stórtónleikar Stjórnarinnar, barnalán og ljúfar samverustundir einkenndu liðna viku hjá stjörnum landins. Elísabet Gunnars byrjaði haustið á miðaldra mömmufríi á meðan fyrirsætan Birta Abiba segist fagna sumarlokunum í New York.

Stjörnulífið: Töru Sif meinað að fara í bað

Skemmtanalífið var upp á sitt allra besta um helgina með fjöldanum öllum af árshátíðum og öðrum líflegum viðburðum. Stjörnur landsins skinu skært hvort sem það var í brúðkaupum eða hlaupagallanum í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.