Real Madrid upp að hlið Barcelona á toppnum

Real Madrid CF v Villarreal CF - La Liga EA Sports MADRID, SPAIN - OCTOBER 05: Kylian Mbappe of Real Madrid CF runs with the ball during the LaLiga match between Real Madrid CF and Villarreal CF at Estadio Santiago Bernabeu on October 05, 2024 in Madrid, Spain. (Photo by Diego Souto/Getty Images)

Real Madrid er enn ósigrað í spænsku úrvalsdeildinni en liðið lagði Celta Vigo í kvöld 1-2 með mörkum frá Mbappe og Vini Jr.

Mbappe skoraði fyrsta mark leiksins á 20. mínútu en þetta var sjötta mark hans í níu leikjum. Svíinn ungi Williot Swedberg jafnaði metin svo í seinni hálfleik en Vini Jr. innsiglaði sigur Real Madrid á 66. mínútu.

Real Madrid fer því eins og áður sagði upp að hlið Barcelona á toppi deildarinnar. Bæði lið með 24 stig en Real hefur ekki enn tapað leik í deildinni, líkt og reyndar nágrannar þeirra í Atlético, sem sitja í 3. sætinu með 17 stig, og fleiri jafntefli (fimm) en sigra (fjóra).

Bein lýsing

Leikirnir

    Fleiri fréttir

    Sjá meira