Lífið

Stjörnulífið: Ástin, af­mæli og stórir draumar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Liðin vika var stútfull af ævintýrum hjá stjörnum landsins.
Liðin vika var stútfull af ævintýrum hjá stjörnum landsins.

Síðastliðin vika var viðburðarík að vanda hjá samfélagsmiðlastjörnum landsins. Árshátíðir fyrirtækja, afmæli, tónleikar og kvennakvöld íþróttafélaga voru áberandi um helgina. Þá voru myndir frá ferðalögum erlendis áberandi og virðast Íslendingar æstir í að ná nokkrum sólargeislum fyrir veturinn.

Stjörnulögfræðingurinn Villi Vill fagnaði 55 ára afmæli sínu í góðra vina hópi á veitingastaðnum ÓX um helgina. En kvöldið kostar að lágmárki 66 þúsund krónur á mann.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Tvö ár af ást

Helgi Ómarsson áhrifavaldur og Pétur Björgvin Sveinsson fögnuðu tveggja ára sambandsafmæli þeirra í sólinni á Tenerife.

Afmælisskvísa

Birgitta Líf markaðsstjóri World Class, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna fagnaði 32 ára afmæli sínu um helgina.

Draumar rætast

Guðmundur Birki Pálmason, eða Gummi kíró, er með góðan boðskap og vetur fólk til að til að drauma stórt.

Bráðum fjögur

Tanja Ýr Ástþórsdóttir og kærastinn hennar Ryan Amor, telja niður dagana í frumburðinn. „Bráðum fjögurra manna fjölskylda,“ skrifar Tanja og telur þar ferfætlinginn með.

Elskar aðdáendur sína

Tónlistarkonan Bríet segir aðdáendur sína gera líf hennar betra.

Öruggur í Flórída

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason var öruggur þegar fellibylurinn Milton gekk yfir í Flórída. Þar er hann í glæsihýsi ásamt stórfjölskyldunni, þar á meðal er afi hans Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur við Góu.

Pasta í öll mál

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir nýtur lífsins í botn í fríi á Ítalíu þar sem hún fær sér pasta í öll mál.

Stóra eplið

Stórstjarnan Laufey Lín spókaði sig um götur New York í sólinni ásamt systur sinni Júníu.

Annasöm vika

Halla Tómasdóttir forseti Íslands hafði í nógu að snúast í liðinni viku.

Tónlistarveisla

Tónlistarkonan Birgitta Haukdal kom fram á Aldamótatónleikunum um helgina.

Nýjar andlitsmyndir

Rúrik Gíslason fyrirsæta og athafnamaður birti nýjar myndir af sér.

Mætt til Filippseyja

Fegurðardrottningin Hrafnhildur Haraldsdóttir er mætt til Filipseyja þar sem hún keppir fyrir Íslands hönd í Miss Earth.

Menningarlegar mæðgur

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir förðunarfræðingur fór með dóttur sinni í leikhús.

Hress afmæliskveðja

Eva Ruza Miljevic skemmtikraftur sendi vini sínum og samstarfsfélaga, Hjálmari Erni Jóhannssyni, skemmtilega afmæliskveðju í tilefni af 51 árs afmæli hans.

Á von á stúlku

Birta Líf Ólafsdóttir áhrifavaldur tilkynnti á von á sínu öðru barni með kærasta sínum Gunnari Patrik.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum

Konunglegar heimsóknir og brúðkaup voru meðal þess sem bar hæst í vikunni sem leið hjá stjörnum landsins. Það hefur ekki farið framhjá neinum að það hefur kólnað allhressilega á landinu og jörðin víðast hvar orðin hvít. Það er ekki að sjá hjá mörgum stjörnum sem eru í sólinni í útlöndum.

Stjörnulífið: „Virkilega slæm vika fyrir all my haters“

Fallegt haustveður, stórtónleikar Stjórnarinnar, barnalán og ljúfar samverustundir einkenndu liðna viku hjá stjörnum landins. Elísabet Gunnars byrjaði haustið á miðaldra mömmufríi á meðan fyrirsætan Birta Abiba segist fagna sumarlokunum í New York.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.