Sjálfstæðisflokkurinn skuldi kjósendum skýringar Lovísa Arnardóttir skrifar 22. október 2024 09:17 Ólafur Adolfsson hefur tekið við forystu Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Aðsend Ólafur Adolfsson nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi segir Sjálfstæðisflokkinn skulda kjósendum sínum skýringar. Það hafi verið röng ákvörðun að halda áfram í ríkisstjórnarsamstarfinu. Í flokknum sé verið að skipta út fólki því kjósendur vilji nýjar áherslur.
Ólafur var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun ásamt Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni formanni Rafiðnaðarsambandsins en hann hefur gefið kost á sér í 2. sæti á lista Samfylkingar í öðru Reykjavíkurkjördæmanna. „Ég er jafnaðarmaður og sá hópur sem ég tilheyri. Þetta er ekki mjög flókið,“ segir Kristján Þórður um það af hverju hann valdi Samfylkinguna. Sjálfkjörinn í Norðvestur Ólafur Adolfsson var um helgina sjálfkjörinn í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en fyrrverandi oddviti Teitur Björn Einarsson sóttist ekki eftir sæti á lista eftir að hafa ekki náð kjöri í 2. sæti listans Ólafur segist hafa verið Sjálfstæðismaður lengi og gildi flokksins séu þau sem hann lifi í lífinu. „Að verðlauna einstaklingsframtakið, að nýta það besta úr hverjum einstaklingi og að allir fái jöfn tækifæri til að nýta krafta sína,“ segir Ólafur sem er lyfsali á Akranesi. Hann segir að til þess að búa til verðmæti verði hvati og Sjálfstæðisstefnan sé leiðarvísir að því. Hann segir flokkinn undanfarið ekki hafa fylgt þessari stefnu og þess vegna hafi hann boðið sig fram. „Það var auðvitað þannig að þegar komið var að máli við mig núna var ég búinn að taka ákvörðun um að vera ekki meira í pólitík,“ segir Ólafur en hann sat í átta ár í sveitarstjórn í Borgarnesi. Þetta sé erfið og krefjandi vinna sem fari ekki alfarið með því að reka fyrirtæki. „En ég horfi bara á málið núna þannig að það sé nauðsynlegt að taka gott fólk og bjóða því að fylgja Sjálfstæðisstefnunni eftir og ég hef kosið að gera það.“ Langtímaverkefni að breyta kerfinu Kristján Þórður segir alla þurfa að hafa jöfn tækifæri til að sækja fram í lífinu. Sem dæmi eigi menntakerfið að standa öllum til boða en geri það ekki í dag. Sem dæmi standi ekki öllum til boða að mennta sig sem iðnaðarmenn sem það vilja. Þá segir hann heilbrigðiskerfið þurfa að styðja við fólkið og taka á móti því en það sé ekki í dag eins og það eigi að vera. Hann segir þetta langtímaverkefni en það þurfi að markvisst forgangstaða þannig að það sé hægt að byggja kerfin upp á réttlátari hátt. Ólafur ræddi lyfjakerfið og aðkomu ríkisins. Flestir hafi ráð á því að kaupa þau lyf sem þau þurfi en ríkið taki ekki þátt í greiðsluþátttöku allra lyfja. Það geti verið erfitt þegar það er ekki gert. Ólafur segir auðvitað ekki alla búa hér við góðan kost en það sé kerfið á Íslandi sem eigi að grípa fólk. Ef það sé einhver út undan þá þurfi að skoða það. „En það getur ekki falið í sér að við ætlum að smyrja jafnt yfir alla,“ segir Ólafur. Kristján Þórður segist í þessu birtast sú pólitíska forgangsröðun sem hafi verið viðhöfð síðustu ár. Það sé ekki verið að nýta auð samfélagsins á réttlátan hátt og því þurfi að breyta. Það þurfi að setja hagsmuni fólksins í forgang og skoða stöðu þeirra sem eru í sérstaklega erfiðri stöðu. Sjálfstæðismenn vilji nýjar áherslur Ólafur segir það ljóst að á síðasta kjörtímabili hafi það verið röng ákvörðun að ganga aftur til stjórnarsamstarfs við Vinstri græn og Framsóknarflokk. Forysta flokksins beri ábyrgð á því. „Það væri skynsamlegt fyrir Alþingismenn að lofa minna,“ segir Ólafur. Hann segir Sjálfstæðisflokkinn skulda sínum kjósendum skýringar. Það sé verið að skipta út þingmönnum víða vegna þess að fólk vilji nýjar áherslur. Varðandi það að forysta flokksins, sem tók ákvörðun um að halda samstarfinu áfram, sé áfram í forystu segir hann ríkisstjórnina samt ekki hafa verið alslæma. Ólafur og Kristján Þórður ræddu einnig skattkerfið, atvinnulífið, húsnæðismál og ýmis önnur mál í þættinum sem hægt er að hlusta á hér að ofan í heild sinni.
Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Alþingiskosningar 2024 Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Norðvesturkjördæmi Reykjavíkurkjördæmi norður Reykjavíkurkjördæmi suður Bítið Tengdar fréttir „Ekki góð þróun“ að flokkarnir drösli frægu fólki á listana Skiptar skoðanir voru á svokallaðri „frægðarvæðingu“ í komandi Alþingiskosningum í Pallborðinu í gær. Þingmaður Samfylkingarinnar sýnir þróuninni skilning en fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir segir ekki góða þróun að stjórnmálaflokkur geti verið eins og hilluvara fyrir frægt fólk. 22. október 2024 09:03 Jakob og Tómas einu oddvitar Flokks fólksins sem detta út Jakob Frímann verður ekki áfram oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi. Fyrr í dag kom í ljós að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, tæki oddvitasæti í Reykjavík af Tómasi Tómassyni. Aðrir oddvitar halda sætum sínum að sögn varaformanns flokksins. 21. október 2024 21:02 Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Fleiri fréttir Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Sjá meira
„Ekki góð þróun“ að flokkarnir drösli frægu fólki á listana Skiptar skoðanir voru á svokallaðri „frægðarvæðingu“ í komandi Alþingiskosningum í Pallborðinu í gær. Þingmaður Samfylkingarinnar sýnir þróuninni skilning en fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir segir ekki góða þróun að stjórnmálaflokkur geti verið eins og hilluvara fyrir frægt fólk. 22. október 2024 09:03
Jakob og Tómas einu oddvitar Flokks fólksins sem detta út Jakob Frímann verður ekki áfram oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi. Fyrr í dag kom í ljós að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, tæki oddvitasæti í Reykjavík af Tómasi Tómassyni. Aðrir oddvitar halda sætum sínum að sögn varaformanns flokksins. 21. október 2024 21:02