Breki áfram formaður Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2024 14:59 Breki Karlsson hefur verið formaður Neytendasamtakanna frá árinu 2018. Vísir/Einar Breki Karlsson verður áfram formaður Neytendasamtakanna en hann var einn í kjöri til formanns á aðalfundi samtakanna sem fram fór síðasta þriðjudag. Hann var því sjálfkjörinn formaður til næstu tveggja ára.
Í tilkynningu frá samtökunum segir að fundurinn hafi verið haldinn í húsakynnum samtakanna að Guðrúnartúni 1, en auk venjulegra aðalfundarstarfa hafi þar borið hæst að nýjar samþykktir samtakanna afi verið samþykktar einróma. „Helstu breytingarnar felast í að aðalfundur verður framvegis að vori en ekki hausti, heimildir til rafrænna kosninga voru styrktar, tímatakmarkanir á stjórnarsetu voru afnumdar, sem og tilkynningaskylda um þátttöku á aðalfundi. Samþykktir Neytendasamtakanna er að finna hér: https://ns.is/log Á hverju ári er kosið um helming stjórnar samtakanna til tveggja ára og voru eftirfarandi sjálfkjörin í stjórn 2024 – 2026: Auður Alfa Ólafsdóttir, Benjamín Julian, Flóki Guðmundsson, Guðmundur Gunnarsson, Pálmey Helga Gísladóttir og Virpi Jokinen. Þau Benjamín, Flóki og Virpi eru ný í stjórninni. Fyrir í stjórn 2023-2025 eru þau Hildigunnur Hafsteinsdóttir, Margrét Dóra Ragnarsdóttir, Salka Sól Styrmisdóttir, Sigurður Másson, Stefán Hrafn Jónsson og Þórarinn Stefánsson. Fráfarandi stjórnarmönnum, þeim Ólafi B. Einarssyni, Þóreyju S. Þórisdóttur og Sigurlínu Sigurðardóttur var þakkað fyrir góð störf. Breki Karlsson var einn í kjöri til formanns og því sjálfkjörinn formaður til næstu tveggja ára. Aðalfundur Neytendasamtakanna samþykkti jafnframt eftirfarandi ályktanir um rafmagnsverð til heimila og um úrvinnslusjóð. Rafmagnsverð til heimila Aðalfundur Neytendasamtakanna 2024 krefst þess að stjórnvöld setji arðsemisþak á sölu rafmagns til heimila. Raforka er ein forsenda búsetu á Íslandi og afar ólík vörum á frjálsum markaði. Heimilin neyðast nú til að keppa við stórfyrirtæki um rafmagn, sem meðal annars hefur leitt til 13% verðhækkunar síðustu tólf mánuði. Heimilin nota aðeins 4,6% af allri framleiddri raforku á Íslandi og stjórnvöld verða að tryggja þeim ekki bara afhendingaröryggi heldur einnig verðöryggi. Með arðsemisþaki á sölu rafmagns til heimila væri raforka sett undir sama hatt og kalt og heitt vatn og flutningur á raforku, þar sem nú þegar er þak á arðsemi. Aðalfundur Neytendasamtakanna krefst þess að stórir raforkuframleiðendur verði skyldaðir til að veita 5% af framleiðslu sinni til heimila og selja með takmarkaðri arðsemi. Ódýrt rafmagn til heimila er réttmætt gjald fyrir nýtingu sameiginlegra náttúruauðlinda og stuðlar að þjóðarsátt um nauðsynlegar virkjanir. Úrvinnslusjóður Aðalfundur Neytendasamtakanna krefst þess að ráðherra skipi fulltrúa neytenda og fulltrúa umhverfis- og náttúruverndar í stjórn Úrvinnslusjóðs. Úrvinnslusjóður er í eigu ríkisins, fjármagnaður af neytendum, og gegnir mikilvægu hlutverki við innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Það skýtur skökku við að fulltrúar atvinnulífsins skipi meirihluta stjórnar en að hvorki fulltrúar neytenda né fulltrúar umhverfis- og náttúruverndar eigi þar sæti. Aðalfundur Neytendasamtakanna gerir alvarlegar athugasemdir við að starfshópur um endurskoðun laga um Úrvinnslusjóð, sem á að skila tillögum til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eigi síðar en 15. nóvember 2024, hafi enn ekki fundað með Neytendasamtökunum, sem eru þó fulltrúi eins stærsta hagaðilans, neytenda og heimila. Aðalfundurinn krefst þess að starfshópurinn fundi með Neytendasamtökunum og taki tillit til athugasemda þeirra við vinnslu tillagna til ráðherra. Þá gerir aðalfundur athugasemd við að skipaður formaður starfshópsins sé jafnframt stjórnarformaður Úrvinnslusjóðs,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.
Neytendur Mest lesið Ekki gefinn afsláttur á gjaldskyldu í snjókomu Neytendur Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Viðskipti innlent Eigandi skrifstofu í Kringlunni þarf að borga fyrir auglýsingar Viðskipti innlent Stjórnendur Íslandsbanka enn undir feldi Viðskipti innlent Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Neytendur Nvidia metið á 615 billjónir króna Viðskipti erlent Fyrrverandi starfsmenn endurvekja Lagningu Viðskipti innlent Reikna með 1,5 milljarði króna í sjóböðin í Önundarfirði Viðskipti innlent Segja þingmann draga upp skakka mynd af stöðu nýsköpunar Viðskipti innlent Enn meiri veikleikar í samkeppnishæfni Íslands en ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Segja þingmann draga upp skakka mynd af stöðu nýsköpunar Eigandi skrifstofu í Kringlunni þarf að borga fyrir auglýsingar Stjórnendur Íslandsbanka enn undir feldi Fyrrverandi starfsmenn endurvekja Lagningu Reikna með 1,5 milljarði króna í sjóböðin í Önundarfirði Enn meiri veikleikar í samkeppnishæfni Íslands en ESB Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Mun leiða svið markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Advania Finna meira gull á Grænlandi Jónas Már til Réttar „Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Hætt við að vextir hækki „Niðursveifla í byggingariðnaði er hafin“ Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Ráðin framkvæmdastjóri Sólar ehf. Tilkynntu Terra og Kubb eftir fundi með sveitarfélögum Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Síldarvinnslan birtir jákvæða afkomuviðvörun „Það verða fjöldagjaldþrot“ Veitingamenn uggandi yfir erfiðum rekstrarskilyrðum Meirihluti vill afnema áminningarskyldu Byrjaði 18 ára í þjónustuverinu og hættir nú sem framkvæmdastjóri Öll lónin full og vatnsbúskapur tók stökkbreytingum Tekjur Isavia jukust um tæpa 1,2 milljarða króna milli ára Þrjú kvár stýra fyrirtækjum Hyggjast opna lágvöruverslun og Orkustöð á Blönduósi Sjá meira