Íslenski boltinn

Víkingar krefjast refsingar vegna tjónsins en þurfa lík­lega að treysta á lög­reglu

Sindri Sverrisson skrifar
Nikolaj Hansen þurfti að fjarlægja logandi blys af gervigrasinu í Víkinni. Nóttina fyrir leik voru mörg bretti máluð í Breiðablikslitum af óprúttnum aðila.
Nikolaj Hansen þurfti að fjarlægja logandi blys af gervigrasinu í Víkinni. Nóttina fyrir leik voru mörg bretti máluð í Breiðablikslitum af óprúttnum aðila.

Óspektir stuðningsmanna á úrslitaleik Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta eru komnar inn á borð aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. Víkingar kalla einnig eftir refsingu vegna skemmdarverka í skjóli nætur fyrir leik en ólíklegt mun vera að nefndin refsi Blikum vegna þeirra.

Nóttina fyrir úrslitaleikinn komst óprúttinn aðili inn á Víkingssvæði, vopnaður málningarrúllu og grænni málningu í anda Breiðabliks. Samkvæmt frétt Fótbolta.net málaði hann um 250-300 bretti í grænum lit, af um 2.000 brettum sem komið var upp sérstaklega vegna leiksins til að sem flestir áhorfendur gætu orðið vitni að sögulegri stund.

Í frétt Fótbolta.net var því jafnframt haldið fram að Víkingar ætluðu að kæra Breiðablik vegna málsins, og að tjónið næmi einni og hálfri milljón.

Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, segir í samtali við Vísi í dag að enn standi til að leita til KSÍ vegna málsins. Tjónið vegna brettanna sé minna en óttast var en að málning hafi einnig farið á stóra auglýsingaseglborða sem hver um sig kosti 70-80 þúsund krónur í framleiðslu.

„Þetta var tilkynnt til lögreglu og mér finnst mikilvægt að menn komist ekki upp með þetta. Það verða að vera einhver viðurlög, annars endar þetta bara í einhverri vitleysu,“ segir Haraldur við Vísi.

Blysi kastað inn á völlinn

Það á eftir að skýrast hvað lögregla aðhefst vegna málsins en samkvæmt upplýsingum Vísis er aftur á móti afar ólíklegt að aga- og úrskurðarnefnd KSÍ refsi Breiðabliki vegna skemmdarverkanna. Þau voru unnin langt utan þess tímaramma sem alla jafna er miðað við varðandi mögulegar refsingar félaga vegna óláta stuðningsmanna á leikjum.

Þó mun vera minnst á skemmdarverkin í langri atvikalýsingu eftirlitsmanns KSÍ þar sem önnur ólæti, á meðan á leik stóð, eru rakin. Þar mun meðal annars vera horft til þess að stuðningsmenn beggja liða kveiktu á blysum. Í eitt skiptið, eftir þriðja og síðasta mark Blika í 3-0 sigrinum sem tryggði þeim titilinn, þurfti Nikolaj Hansen, fyrirliði Víkinga, að fjarlægja logandi blys af gervigrasvellinum eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Nikolaj fjarlægði blys af vellinum

Aga- og úrskurðarnefnd gefur væntanlega bæði Víkingi og Breiðabliki færi á að segja sína hlið áður en hún fundar næsta þriðjudag, þar sem úrskurðar má vænta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×