Íslenski boltinn

Alexander endur­nýjar kynnin við Óskar

Sindri Sverrisson skrifar
Alexander Helgi Sigurðarson er mættur í KR-búninginn.
Alexander Helgi Sigurðarson er mættur í KR-búninginn. Facebook/@krreykjavik1899

Knattspyrnumaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson hefur skrifað undir samning til þriggja ára við KR. Hann kemur til félagsins frá Breiðabliki.

Alexander Helgi endurnýjar þar með kynni sín við Óskar Hrafn Þorvaldsson sem þjálfaði hann hjá Breiðabliki.

Alexander, sem er 28 ára miðjumaður, lék með Breiðabliki upp alla yngri flokka en fór sautján ára gamall til Hollands og spilaði þar með unglingaliði AZ Alkmaar. Hann lék sem lánsmaður frá Blikum með Víkingi Ólafsvík árið 2018 og með Vasalund í næstefstu deild Svíþjóðar árið 2022, en hefur annars leikið með Breiðabliki.

Breiðablik tilkynnti það um miðjan júlí að Alexander myndi fara frá félaginu eftir tímabilið sem nú var að ljúka, þegar Blikar urðu Íslandsmeistarar á sunnudaginn með 3-0 sigri á Víkingi. Hann lék ellefu deildarleiki með liðinu framan af tímabili en mun hafa átt við meiðsli í hné að stríða og hefur ekki spilað síðan 21. júlí.

„Við bjóðum Alexander Helga velkominn í KR og vonumst til að sjá hann blómstra í KR treyjunni á næsta tímabili,“ segir í tilkynningu frá KR nú í morgun.

Óskar Hrafn hefur ekki setið auðum höndum á leikmannamarkaðnum frá því að hann tók við liði KR um mitt tímabil. Liðið fékk þá Ástbjörn Þórðarson, Gyrði Hrafn Guðbrandsson og Guðmund Andra Tryggvason til liðsins í sumarglugganum.

Alexander Helgi er þá áttundi leikmaðurinn sem bætist við hópinn fyrir næsta tímabil, alls sá ellefti frá því að Óskar mætti í Vesturbæinn.

Áður hefur KR samið við Róbert Elís Hlynsson sem kom frá ÍR, þeir Óliver Dagur Thorlacius, Júlíus Már Júlíusson og Halldór Snær Georgsson komu allir úr Fjölni, Jakob Gunnar Sigurðsson frá Völsungi, Matthias Præst frá Fylki, Gabríel Hrannar Eyjólfsson frá Gróttu og Hjalti Sigurðsson frá Leikni R.

Þá gæti bæst við hóp KR enn frekar á næstu dögum og vikum en heimildir Vísis herma að félagið hyggist fá Vicente Valor til liðsins en sá var öflugur með ÍBV er Eyjamenn unnu Lengjudeildina í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×