Lífið

Eyddi Youtube síðu sonarins

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Kim Kardashian lét son sinn skrifa undir samning, sem hann svo braut.
Kim Kardashian lét son sinn skrifa undir samning, sem hann svo braut. EPA-EFE/CAROLINE BREHMAN

Bandaríska athafnakonan Kim Kardashian eyddi Youtube síðu elsta sonar síns hins átta ára gamla Saint West eftir að hann birti tvennar færslur um Kamölu Harris þar sem vísað var til hennar með niðrandi hætti.

Þetta fullyrðir breska götublaðið Daily Mail. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að Kim hafi fyrir mánuði síðan tjáð sig á Instagram um það að hún hafi gefið syni sínum leyfi til þess að vera með Youtube síðu gegn því að hann samþykkti að fylgja ákveðnum reglum. Voru þær undirritaðar af stráknum í mjög formlegum skriflegum samningi. Svo virðist vera sem þær hafi nú verið brotnar.

Fram kemur að hinn átta ára gamli strákur hafi meðal annars birt mynd í meme stíl af varaforsetanum þar sem mátti sjá skó teiknimyndapersónu á andliti hennar. Stóð fyrir neðan: „Ég steig í skít.“ Örstutt er í kosningar vestanhafs sem fara fram á þriðjudag.

Mikil umræða hefur skapast um færslur stráksins á meðal netverja og aðdáenda þeirra Kanye West föður hans og móður hans Kim. Tengja flestir færslur stráksins við stuðning föður hans við Donald Trump.

Kanye hefur um langa hríð verið mikill stuðningsmaður forsetans. Athygli vakti þegar rapparinn hitti Trump á sérstökum fundi í Hvíta húsinu þegar hann var enn forseti.

Umrædd mynd frá syni Kim Kardashian.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×