Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Lovísa Arnardóttir skrifar 1. nóvember 2024 12:17 Ágúst Torfi segir að rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Samsett Framkvæmdastjóri Kjarnafæðis segir fyrirtækið hafa átt í nánum samskiptum við MAST allt frá því að E. coli smit kom upp á leikskólanum Mánagarði. Það sé miður að fjöldi barna hafi veikst en með réttri meðhöndlun á hakkinu hefði verið hægt að koma í veg fyrir það. „
Við tökum þessu mjög alvarlega og höfum unnið náið með Matvælastofnun og stýrihópnum á meðan þetta mál er unnið. Þessi lota var framleidd 5. september og málið kemur upp 17. október, segir Ágúst Torfi Hauksson framkvæmdastjóri Kjarnafæðis. Fram kom í tilkynningu frá MAST í morgun að rannsóknir Matís á uppruna E.coli smits hafi staðfest að bakterían var í hakki sem var matreitt á leikskólanum. Niðurstaða rannsóknarinnar er að eldun hakksins á leikskólanum hafi ekki verið fullnægjandi með tilliti til hreinlætis og réttrar meðhöndlunar hakks. Matráður leikskólans hefur sagt upp störfum en leikskólinn er enn lokaður. Eingöngu selt til stærri eldhúsa Börnin fengu hakk og spaghettí í matinn þann 17. október og veiktust eftir það. Hakkið var blandað nautgripa- og kindahakk frá Kjarnafæði. Það fór ekki í almenna sölu, heldur eingöngu selt til stærri eldhúsa. Um 45 börn hafa veikst af sýkingunni. Fjögur voru á gjörgæslu í gær og 11 inniliggjandi á Barnaspítalanum. Ágúst Torfi segir að þegar Kjarnafæði leitaði til sinna viðskiptavina, sem einnig höfðu keypt hakkið, hafi komið í ljós að þess hefði alls verið neytt án nokkurra vandkvæða eða veikinda hjá öðrum viðskiptavinum. Það hafi því ekki verið hægt að innkalla það. Hefði það verið hægt hefði Kjarnafæði gert það. Hreinlæti og rétt meðhöndlun lykilatriði Í tilkynningu MAST er farið ítarlega yfir það að E. coli bakteríur eru hluti af náttúrulegri þarmaflóru manna og dýra og geti borist í vatn, kjöt, grænmeti og önnur matvæli við framleiðslu þeirra. Þá kemur einnig fram að til séu mismunandi tegundir E.coli gerla. Flestar séu skaðlausar en að Shigatoxin myndandi E. coli (STEC) beri gen sem skrá fyrir eiturefnum sem geti valdið veikindum. Þá kemur fram að samkvæmt löggjöf kjötframleiðslu sé ekki gerð krafa til framleiðenda að allt kjöt sé laust við E. coli áður en það fer á markað. Kjötframleiðendur eigi að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að minnka líkur á mengun á skrokkum og kjötvörum í ferlinu. Það sé gert með hreinum gripum, réttum handbrögðum og hreinum búnaði. Þá er einnig bent á að í skimun á tilvist sjúkdómsvaldandi baktería í íslensku kjöti á markaði hérlendis árið 2018 kom fram að STEC meinvirknigen fundust í tæplega 30 prósent sýna af lambakjöti og 11,5 prósent sýna af nautgripakjöti. „Hreinlæti og rétt meðhöndlun kjöts og fullnægjandi eldun hjá notendum/neytendum er því lykilatriði til að koma í veg fyrir smit af völdum E. coli, þ.m.t. STEC frá kjöti. Rannsókn stýrihópsins hefur leitt í ljós að meðhöndlun hakksins að þessu leyti við matseld í leikskólanum hafi verið ófullnægjandi,“ segir í tilkynningunni. Það hafi því verið gerlar í kjötinu en að vegna lélegrar meðhöndlunar á leikskólanum og lélegs hreinlætis hafi gerlarnir ekki steikst úr við eldun. Sé kjötið steikt við 75°C eigi gerlarnir að drepast. Meðhöndlun vörunnar í eldhúsinu ábótavant Ágúst Torfi segir Kjarnafæði með reglubundið eftirlit á sínum vörum. Þau geri til dæmis örverutengdar mælingar í framleiðsluferlinu og hafi gert slíkar mælingar á þessari lotu af hakki. „Það er ekkert sem benti til þess að varan hafi verið óörugg neytendum þegar hún fór frá okkur. Allar okkar mælingar voru undir mörkum og aðrir viðskiptavinir sem fengu vöruna í sömu lotu var ekki meint af, það kom ekkert upp.“ Ágúst Torfi segir að í vinnu stýrihópsins hafi verið skoðuð matvæli frá þeim og frá öðrum. Auk þess hafi eldhúsið sjálft verið skoðað. „Niðurstaðan er sú að meðhöndlun vörunnar í eldhúsi hafi verið ábótavant. Það er alveg skelfilegt að fólk verði svona veikt og sérstaklega þegar það eru börn. Við tökum þessu mjög alvarlega og höfum því unnið náið með MAST og stýrihópnum,“ segir Ágúst Torfi. Hann segir miður að nafni fyrirtækisins sé blandað í umræðuna og áréttar að niðurstaða stýrihópsins sé röng meðhöndlun í eldhúsinu á leikskólanum. „Frekar en að okkar framleiðsluvara hafi verið utan einhverra marka. Það breytir því samt ekki að varan var framleidd hjá okkur. Það liggur fyrir að ef varan hefði verið elduð rétt þá dey gerillinn,“ segir hann og að eldunarleiðbeiningar MAST séu alveg skýrar með það.
E. coli-sýking á Mánagarði Heilbrigðismál Leikskólar Reykjavík Matvælaframleiðsla Matur Tengdar fréttir Fimm börn alvarlega veik á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum vegna E.coli sýkingar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þar af fimm þeirra á gjörgæslu. Um 40 börn eru undir eftirlit vegna sýkingarinnar. E. Coli sýking getur leitt til alvarlegar nýrnabilunar og því eru börn sem eru á gjörgæslu í blóðskilun. 29. október 2024 21:17 Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar Leikskólinn Mánagarður í Vesturbæ Reykjavíkur er enn lokaður eftir að upp kom E.coli sýking á leikskólanum í síðustu viku. Leikskólastjóri segir það koma í ljós síðar í dag hvort hægt sé að opna í vikunni. Hún ætlar að kaupa tilbúinn mat á meðan málið er til rannsóknar. 28. október 2024 11:55 Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Erlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Erlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Keyrði aftan á strætisvagn Innlent Fleiri fréttir Hælisleitendur og börn í auknu mæli notuð sem burðardýr Sameining geti aukið aðdráttarafl fyrir nýja íbúa Arnfríður og Víðir Smári tímabundið í Landsrétt Eldur í Sorpu á Granda Keyrði aftan á strætisvagn Vegagerðin býður út for- og verkhönnun Fljótaganga Safna undirskriftum til að styðja Fjarðarheiðargöng Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur í Garðabæ Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Sjö sækja um tvær lausar stöður Minni hagvöxtur og hjólhýsin mögulega í Skerjafjörðinn Ætla að flytja starfsemi Vogs Tvöfalt fleiri skipulagðir brotahópar en fyrir tíu árum Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Skortir lækna í Breiðholti Staðfesti tveggja ára dóm vegna nauðgunar í jólateiti fyrir austan Fleiri sem ekki verja neinum tíma í lestur Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Helgi Pétursson er látinn Stolinn köttur, nágrannaerjur og ungmenni til vandræða Lýsa víðtæku ofbeldi gagnvart eldra fólki og kalla eftir vakningu Vill byrja á næstu göngum árið 2027 en segir ekki hvar Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Bregðast ekki við bílastæðavanda við skíðasvæði í Reykjavík Héldu styrktartónleika fyrir kristna flóttamenn Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Tapaði aftur gegn borginni eftir afdrifaríka rennibrautarferð Sakborningur enn að störfum og atvikið ekki tilkynnt Brotið á Stuðlum ekki tilkynnt og foreldrar taka mál í eigin hendur Sjá meira
Fimm börn alvarlega veik á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum vegna E.coli sýkingar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þar af fimm þeirra á gjörgæslu. Um 40 börn eru undir eftirlit vegna sýkingarinnar. E. Coli sýking getur leitt til alvarlegar nýrnabilunar og því eru börn sem eru á gjörgæslu í blóðskilun. 29. október 2024 21:17
Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar Leikskólinn Mánagarður í Vesturbæ Reykjavíkur er enn lokaður eftir að upp kom E.coli sýking á leikskólanum í síðustu viku. Leikskólastjóri segir það koma í ljós síðar í dag hvort hægt sé að opna í vikunni. Hún ætlar að kaupa tilbúinn mat á meðan málið er til rannsóknar. 28. október 2024 11:55