Enski boltinn

Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gary Martin fagnar bikarmeistaratitlinum 2014.
Gary Martin fagnar bikarmeistaratitlinum 2014. vísir/andri marinó

Eftir að hafa flutt aftur heim til Englands er fótboltamaðurinn Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið.

Gary hefur skrifað undir tveggja ára samning við Bishop Auckland sem leikur í áttundu efstu deild á Englandi.

Gary lék nær samfleytt á Íslandi frá 2010 til 2024. Hann varð Íslandsmeistari með KR 2013 og bikarmeistari með liðinu 2012 og 2014. Þá vann Gary Gullskóinn í tvígang, einu sinni sem leikmaður KR og einu sinni sem leikmaður ÍBV.

Á dögunum settist Gary niður með Aroni Guðmundssyni og fór yfir feril sinn á Íslandi. Gary kveðst sáttur með tíma sinn hér á landi og finnst líklegt að hann komi hingað aftur.

„Ég á Ís­landi líf mitt að þakka. Allt sem ég á er Ís­landi að þakka. Allt sem ég hef af­rekað. Þess vegna er ég alltaf til í að snúa hingað aftur. Hvort sem það er sem leik­maður eða þjálfari. Ég tel að ég muni snúa aftur hingað til lands einn daginn. Þetta er besta landið sem ég hef búið á. Ég myndi setja það framar Eng­landi þegar kemur að því að kalla eitt­hvað mitt heimili,“ sagði framherjinn.

Víkingur Ó. var síðasta liðið sem Gary lék með hér á landi. Auk þess spilaði hann fyrir ÍA, KR, Víking, Val, ÍBV og Selfoss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×