Lífið

Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnurnar í Hollywood fara alla leið hvað varðar búninga á hrekkjavökunni.
Stjörnurnar í Hollywood fara alla leið hvað varðar búninga á hrekkjavökunni.

Líkt og flestir vita fór hrekkjavökuhátíðin fram síðastliðinn fimmtudag. Stjörnurnar  Hollywood eru ekki undanskildar og halda hátíðlega upp á hrekkjavökuna ár hvert og keppast um að klæðast flottasta búningnum.

Fjölmörg hrekkjavökupartí voru haldin í vestan hafs og voru sumar stjörnurnar gjörsamlega óþekkjanlegar.  Hér að neðan má sjá lista yfir hrekkjavökubúninga sem súperstjörnur heimsins skörtuðu á hrekkjavökunni í ár:  

Heidi Klum sem frægasta geim­vera í heimi

Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum fer undantekningalaust alla leið á hrekkjavökunni og ber höfuð og herðar yfir aðra hrekkjavökuunnendur. Árlega býður hún og eiginmaður hennar, Tom Kaulitz, skærustu stjörnum Hollywood í hrekkjavökupartí í New York. 

Í ár mættu hjónin í gervi geimverunnar E.T. úr samnefndri kvikmynd frá árinu 1982.

Fyrirsætan Heidi Klum og eiginmaður hennar Tom Kaulitz mættu í gervi E.T. í árlegt hrekkjavökupartý hennar sem fór fram á Hard Rock hótelinu í New York í gær.Getty

Kim Kardashian sem krókódíll

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian klæddi sig upp sem albínóa krókódíll. Breski förðunarfræðingurinn Alexis Stone sá um að breyta raunveruleikastjörnunni og gera hana nánast óþekkjanlega.

Líkir eftir Demi Moore

Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner fór aftur í tímann og brá sér í gervi Demi Moore úr kvikmyndinni Striptease frá árinu 1996. Jenner birti sjóðheitar myndir af sér á Instagram-síðu sinni.

Fyrsta hrekkjavakan sem fjölskylda

Tónlistarmaðurinn Justin Bieber og eiginkona hans Hailey Bieber klæddu sig upp sem karakterarir Kim og Ron úr Disney-þáttaröðinni „Kim Possible.“ Sonur hjónanna, Jack Blues, sem er aðeins tveggja mánaða gamall, tók einnig þátt í gleðinni, klæddur eins og gæludýr karaktersins Ron, nagdýrið Rufus.

Paris Hilton sem Mia Wallace

Athafnakonan Paris Hilton líkti eftir karakter Umu Thurman, Mia Wallace, úr kvikmyndinni Pulp Fiction frá árinu 1994 sem átti eftir að njóta gríðarlegra vinsælda um heim allan.

Jessica Alba og Beetlejuice

Leikkonan Jessica Alba og fjölskylda, klæddu sig í gervi karakterana úr hryllingsgrínmyndinni Beetlejuice frá árinu 1989.

Chlöe Bailey í gervi Jessica Rabbit

Tónlistarkonan Chlöe Bailey leitaði í heim teiknimyndanna og klæddi sig upp sem Jessica Rabbit.

Lizzo sem Ozempic

Tónlistarkonan Lizzo setti húmorinn í hrekkjavökubúninginn í ár og klæddi sig upp í gervi syk­ur­sýk­is­lyfs­ins Ozempic. „Er skortur á sjálfást? prófaðu Lizzo! Skilaðu skömminni Fáðu aukið sjálfstraust,“ skrifaði hún við mynd af sér í búningnum á Instagram.

Beyoncé sem Betty Davis

Tónlistarkonan Beyoncé klæddi sig í gervi tónlistarkonunnar Betty Davis, sem var ein af frumkvöðlunum á sviði fönk- og sálartónlistar. Davis var þekkt fyrir villta og oft á tíðum kynferðislega texta og er hún talin hafa átt þátt í að móta tónlistarsenuna í New York á síðari hluta sjötta áratugarins.

Í gervi Bond stúlkunnar

Halle Bailey, leik og söngkona, klæddi sig upp sem karakter Halle Berry sem Bond-stúlkan Jinx í kvikmyndinni Die Another Day frá árinu 2002.

Kærustuparið í Undralandi

Leik- og söngkonan Selena Gomes og kærasti hennar, tónlistarmaðurinn Benny Blanco, fóru í gervi, Lísu og Hattarins úr teiknimyndinni Lísa í Undralandi. 

Dularfull Halle Berry

Leikkonan Halle Berry brá sér í gervi seiðandi og dullarfullrar nornar. 

Garner líkti eftir eigin karakter

Leikkonan Jennifer Garner líkti eftir karakter sínum úr kvikmyndinni '13 Going on 30'as. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.