Formúla 1

Hamilton hraunar yfir bílinn sinn og hótar að hætta strax

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lewis Hamilton ætlaði sér miklu stærri hluti í Brasilíu en að enda bara í tíunda sætinu.
Lewis Hamilton ætlaði sér miklu stærri hluti í Brasilíu en að enda bara í tíunda sætinu. Getty/Peter Fox

Lewis Hamilton átti ekki góða helgi í formúlu 1 og breski ökuþórinn var allt en sáttur þegar keppninni lauk.

Hamilton endaði í tíunda sæti í brasilíska kappakstrinum en liðsfélagi hans George Russell varð fjórði.

Sky Sports opinberaði upptöku af Hamilton að hrauna yfir Mercedes bílinn sinn í lok keppninnar. Það er einnig hægt að lesa þar á milli línanna að hann ætli mögulega að hætta strax og keyra ekki í síðustu þremur keppnunum.

„Þetta var krísuhelgi, gott fólk. Bílinn hefur aldrei verið verri. Ég vil þakka ykkur fyrir að halda áfram að reyna og það stóðu sig allir vel á viðgerðasvæðinu,“ sagði Hamilton í samskiptatalstöð Mercedes.

„Ef þetta verður síðasta skiptið sem ég keyri bílinn þá er það mikil synd að ekki gekk betur. Ég er samt þakklátur fyrir að hafa ykkur,“ sagði Hamilton.

Hamilton er á síðasta tímabili sínu með Mercedes því hann hefur samið við Ferrari. Hamilton mun keyra Ferrari bílinn á næsta tímabili ásamt Charles Leclerc.

Sky Sports spurði sjöfalda heimsmeistarann út í það hvort hann gæti sleppt síðustu þremur keppnum tímabilsins.

„Vonandi lentum við ekki í fleiri óléttum brautum. Ég held að þær þrjár síðustu séu ekki ósléttar en já það kemur til greina að fara bara í frí, sagði við Hamilton við Sky Sports.

Síðustu þrjár keppnirnar fara fram í Las Vegas í Bandaríkjunum, í Katar og í Abú Dabí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×