Tíska og hönnun

Stappað á sjóð­heitri tísku­sýningu hönnuða fram­tíðarinnar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Fyrirsæta nærir sig fyrir tískupallinn á sýningunni Misbrigði, tískusýningu LHÍ 2. nóvember 2024.
Fyrirsæta nærir sig fyrir tískupallinn á sýningunni Misbrigði, tískusýningu LHÍ 2. nóvember 2024. Heiða Helgadóttir

Það var mikil líf og fjör í LHÍ um helgina þar sem hátískan var í hávegum höfð. Annars árs fatahönnunarnemar stóðu fyrir tískusýningunni Misbrigði en sýningin var einstaklega vel sótt og færri komust að en vildu þar sem miðarnir ruku út eins og heitar lummur.

Misbrigði, tískusýning annars árs nema í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, var haldin í tíunda sinn á laugardaginn. Verkefnið er unnið í samstarfi við Fatasöfnun Rauða Krossins en á sýningunni sýndu fatahönnuðir framtíðarinnar hönnun sem unnin er úr flíkum sem að annars myndu ekki fá nýtt líf.

Nemendurnir sem að sýndu verk sýn í ár voru:

Alma Hildur Ágústsdóttir, Björk Bregendahl, Diane Francoiseau de Biran, Hafberg Sól, Hulda Kristín Hauksdóttir, Kristrún Rut Hassing Antonsdóttir, Ólafía Elísabet Einarsd. Eyfells, Rieke Reiniak, Rósa Sigmarsdóttir, Stella Michiko og Sverrir Ingi Ingibergsson. 

Hönnuðirnir hneigja sig.Heiða Helgadóttir

Í fréttatilkynningu segir að sýningin hafi gengið virkilega vel og öll þau sem að sýningunni komu eigi hrós skilið.

Fyrir þau sem að misstu af sýningunni og vilja ólm kynna sér verk fatahönnuða framtíðarinnar þá verða allar flíkurnar (outfittin) til sýnis í Grósku dagana 22.-24. nóvember.

„Verkefnið Misbrigði er nú unnið af nemendum í fatahönnun á 2. ári við Listaháskóla Íslands í samstarfi við Fatasöfnun Rauða kross Íslands. Markmið þess er að rannsakaða leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósöluhæfum flíkum með þekkingu og aðferðafræði hönnunar og vekja um leið athygli á textílsóun.

Það er óhætt að segja að framleiddur sé fatnaður langt um fram það sem við þurfum og að mengun af þeim sökum sé komin úr böndunum. Óhófleg neyslumenning og stuttur líftími textíls gerir tísku- og textíliðnaðinn mjög óumhverfisvænan. Þessu þurfum við að huga að, draga úr neyslu og nýta betur það sem við höfum.

Þar getur skapandi endurnýting spilað veigamikið hlutverk í framtíðinni en það þarf ekki að koma niður á sköpunargleðinni. Með aðferðafræði hönnunar má glæða gömul klæði og efni nýju lífi,“ segir sömuleiðis í tilkynningunni.

Hér má sjá myndir af tískusýningunni:

Förðunarfræðingar að farða fyrirsætur fyrir sýninguna.Heiða Helgadóttir
Fötin eru frumleg og vistvæn.Heiða Helgadóttir
Fyrirsæturnar ganga pallinn saman.Heiða Helgadóttir
Fatahönnuðirnir vöktu mikla lukku!Heiða Helgadóttir
Gleði að sýningu lokinni!Heiða Helgadóttir
Fyrirsæturnar sýndu einstakar og mjög svo vistvænar flíkur.Heiða Helgadóttir
Fyrirsætan Erna í einstöku fitti.Heiða Helgadóttir
Einstök hönnun.Heiða Helgadóttir
Ungir tískuunnendur!Heiða Helgadóttir
Listræn gleði!Heiða Helgadóttir
Flæðandi fatnaður!Heiða Helgadóttir
Framúrstefnuleg dragt!Heiða Helgadóttir
Glæsilegar!Heiða Helgadóttir
Leður við leður.Heiða Helgadóttir
Ungir fatahönnuðir framtíðarinnar.Heiða Helgadóttir
Þessar voru í stuði.Heiða Helgadóttir
Brúðarbragur yfir þessu!Heiða Helgadóttir
Sítt pils við stuttan bol.Heiða Helgadóttir
Nadía Áróra til hægri og aðrar fyrirsætur í fjöri.Heiða Helgadóttir
Fyrirsætur á spjalli.Heiða Helgadóttir
Fólk á fremsta bekk.Heiða Helgadóttir
Tískuunnendur í góðum gír.Heiða Helgadóttir
Verið að gera og græja.Heiða Helgadóttir
Glæsilegar með hatta og perlur í gömlum anda.Heiða Helgadóttir
Fatahönnuðir voru sáttir með sýninguna.Heiða Helgadóttir
Nadía Áróra rokkaði pelsinn.Heiða Helgadóttir
Einstök samsetning.Heiða Helgadóttir
Tilbúnar fyrir tískupallinn.Heiða Helgadóttir
Ævintýralegt yfirbragð.Heiða Helgadóttir
Smáatriðin upp á tíu.Heiða Helgadóttir
Vintage yfirbragð á ferð og flugi.Heiða Helgadóttir
Brosmildir tískugestir.Heiða Helgadóttir
Opin loðstígvél eru einstakt lúkk.Heiða Helgadóttir
Svart leður og svartar fjaðrir.Heiða Helgadóttir
Smart sett!Heiða Helgadóttir
Þessar voru sáttar með vel heppnaða sýningu!Heiða Helgadóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.