Lífið

Þver­tekur fyrir að typpið hafi verið stækkað

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Barry Keoghan leið vel með að dansa um á typpinu í Saltburn.
Barry Keoghan leið vel með að dansa um á typpinu í Saltburn. Michelle Quance/Variety via Getty Images

Leikarinn Barry Keoghan þvertekur fyrir það að hafa verið með gervityppi við tökur á kvikmyndinni Saltburn. Í lokaatriði myndarinnar dansar Oliver Quick, karakter Keoghan, um nakinn og segir leikarinn að honum hafi ekki þótt það neitt óþægilegt.

Keoghan var viðmælandi í hlaðvarpi Louis Theroux þar sem hann var spurður hvort typpið hefði verið stækkað með hjálp tækninnar.

„Stækkað? Hver sagði það? Nei,“ svaraði Keoghan þá. „Þetta var allt bara ég, ég blikkaði varla augunum yfir því að þurfa að gera þetta. Ef þetta hefði ekki passað svona vel við söguþráðinn hefði það kannski verið öðruvísi. 

Karakterinn er með hálfgerða höll út af fyrir sig í lok myndarinnar og það kannast flest allir við þetta, að ganga um nakinn. Því okkur líður vel í okkar eigin umhverfi.“ 

Keoghan vakti mikla athygli fyrir hlutverk sitt í Saltburn og segja má að hann hafi skotist upp á stjörnuhimininn í kjölfarið. Síðustu misseri hefur hann verið að deita söngkonuna Sabrinu Carpenter, þó með hléum. 

Keoghan segist sjá lokaatriði Saltburn sem listaverk. Það tók meira á hann að læra danssporin en að vera nakinn en að lokum náði hann góðum tökum á sporunum við sígilda smellinn Murder on the Dancefloor. 

„Að sjá líkama einhvers þjóta svona um herbergin, það er næstum því eins og eitthvað málverk.“

Hér má sjá umrætt atriði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.