Tónlist

Fagna tuttugu ára af­mæli og troða upp á Grund

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Þorsteinn Einarsson og Sigurður Guðmundsson meðlimir Hjálma hlakka til að stíga á svið á morgun.
Þorsteinn Einarsson og Sigurður Guðmundsson meðlimir Hjálma hlakka til að stíga á svið á morgun. Guðmundur Kristinn

Það er mikið um að vera hjá ástsælu hljómsveitinni Hjálmum. Þeir eru að senda frá sér nýtt lag sem heitir Vor og troða upp á tvennum Airwaves tónleikum á morgun, bæði á Grund og á Listasafni Reykjavíkur. 

Hér má hlusta á lagið Vor sem kemur út á helstu streymisveitum á morgun. Texti er eftir Þorstein Einarsson: 

Klippa: Hjálmar - Vor

Hjálmar fagna heilum tuttugu árum í bransanum og spila í tilefni af því á Airwaves á morgun, 7. nóvember, á Listasafni Reykjavíkur. Fyrr um daginn spila þeir á Grund. 

„Ég verð örugglega meira vakandi á Grund því hitt giggið er svo seint,“ segir Guðmundur Kristinn Jónsson eða Kiddi, meðlimur Hjálma, kíminn. 

Í tilefni af þessum tímamótum verða kærkomnir endurfundir hjá Hjálmum og sænskum samstarfsfélögum þeirra.

„Svíarnir ætla að koma aftur í heimsókn á Airwaves, þau Nisse, Maja og Mikael. Við unnum mikið með þeim að fyrstu lögunum okkar, Ég vil fá mér kærustu og fleiri góð. Við höfum ekki sést í einhver fimmtán ár og þetta verða kærkomnir endurfundir,“ segir Kiddi. 

Saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson spilar hér með Hjálmum í stúdíóinu.Guðmundur Kristinn

Svíarnir hafa komið víða að í tónlistarheiminum. Nisse spilar til dæmis með heimsklassa tónlistarfólki á borð við Miike Snow, Lykke Li, Amason og Robyn. Mike hefur sömuleiðis unnið mikið með Lykke Li og Maja starfar sem prestur. 

Stund milli upptakna hjá Sigurði Guðmundssyni.Guðmundur Kristinn

Meðlimir Hjálma hlakka mikið til að fagna afmælinu og flytja sín bestu lög. Þeir voru sömuleiðis að senda frá sér tónlistarmyndband sem má sjá hér: 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.