Körfubolti

Davíð Tómas dæmir lands­leik í Helsinki í dag

Aron Guðmundsson skrifar
Davíð Tómas að störfum.
Davíð Tómas að störfum. vísir/vilhelm

Það er ekki bara ís­lenska kvenna­lands­liðið sem á verk­efni í for­keppni EuroBa­sket í kvöld. Körfu­bolta­dómarinn Davíð Tómas Tómas­son mun dæma leik Finn­lands og Slóveníu sem fer fram í Helsinki.

Einnig munu þær Paulina Gajdosz frá Póllandi og Sara Mans­son frá Svíþjóð mynda dómara­t­eymi leiksins og er tækni­full­trúi FIBA Eric Bertrand frá Sviss.

Leikurinn er hluti af B-riðli undan­keppninnar en auk Finn­lands og Slóveníu eru lands­lið Ung­verja­lands og Búlgaríu í sama riðli.

Fyrir leik dagsins sitja liðin í öðru og þriðja sæti riðilsins með þrjú stig, stigi á eftir topp­liði Ung­verja­lands en efstu lið hvers riðils tryggja sér sæti á Evrópumóti næsta árs og þá munu þau fjögur lið sem eru með besta árangurinn í öðru sæti riðlanna níu einnig tryggja sér far­miða á mótið.

Leikur liðanna hefst klukkan hálf fimm í dag en í kvöld, nánar til­tekið klukkan hálf átta í Ólafs­sal í Hafnarfirði tekur ís­lenska lands­liðið á móti Slóvakíu í F-riðli. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×