Skoðun

Hamstrahjól ríkis­út­gjalda

Aron H. Steinsson skrifar

Á undanförnum árum hafa ríkisútgjöld á Íslandi farið sífellt hækkandi með þeim afleiðingum að verðbólga fer ekki aðeins á flug, heldur kallar þessi aukning á keðjuverkun sem hefur áhrif á allan almenning. Með hverju skrefi eykur ríkissjóður útgjöld sín og fær í staðinn auknar skatttekjur vegna hækkandi verðs, spurningin er hvort þessi stefna sé sjálfbær eða hvort við séum föst í vítahring sem erfitt verður að losna úr.

aðsend

Það sem oft virðist gleymast í þessum stóru ákvörðunum er að slík útgjaldaaukning kemur harðast niður á almenningi. Þegar ríkið eyðir meira, hækkar verðlag, sem þýðir að fólk þarf að borga meira fyrir sömu vörur og þjónustu en áður. Þetta hefur bein áhrif á kaupmáttinn. Hver króna verður minna virði, tekjurnar hætta að duga fyrir almennum útgjöldum og landsmenn þurfa að þynna tómatsósuna til að ná endum saman

Stjórnmálamenn réttlæta ríkisútgjöld, í nafni uppbyggingar á nauðsynlegum innviðum og þjónustu, sem styður langtímastefnu um bætt lífskjör. Þá er hægt að spyrja sig, hvernig fer þessi aukning raunverulega fram? Hafa verið tekin nægjanlega skýr og gagnsæ skref til að sýna hvernig fjármunirnir nýtast, eða eru fjárfestingar ríkisins að valda of miklu fjárstreymi sem hækkar vexti og skapar þrýsting á almennt verðlag?

Á meðan stjórnendur þjóðarbúsins varpa ábyrgðinni á Seðlabankann, sem reiðir sig á vaxtahækkanir til að hemja verðbólguna, heldur ástandið áfram að versna fyrir þá sem þurfa að standa undir daglegum útgjöldum. Stjórnvöld eru í raun eins og hamstur á hjóli, hlaupa og hlaupa, en miðar ekkert áfram. Þessi hringavitleysa þyngir bagga þjóðarinnar og skaðar lífsskilyrði hennar, frekar en að styðja við almenning. Það er að minnsta kosti tilfinningin.

Til að brjótast út úr þessum vítahring verður að endurhugsa efnahagsstefnuna, taka markviss skref til að tryggja sjálfbæra og stöðuga verðbólguþróun. Það þýðir að stjórnvöld þurfa að stíga fastar til jarðar í eigin útgjöldum og finna leiðir til að nýta skatttekjur skynsamlega án þess að keyra upp verðbólgu. Leggja þarf aukna áherslu á ábyrgð og gagnsæi, þannig að þjóðin sjái hvert peningarnir fara, hvernig þeir nýtast til bættrar þjónustu og nauðsynlegra framkvæmda.

Þessi breyting krefst bæði djarfari ákvarðana og staðfestu, til að taka ábyrgð á stöðu mála og knýja fram breytingar. Við þurfum að skilja að fjárhagslegir hagsmunir þjóðarinnar eru samofnir lífskjörum fólks og stöðugleika hagkerfisins til lengri tíma. Með skynsamari stefnu, minni áhættu og ábyrgari stjórn á ríkisútgjöldum getum við byggt hagkerfi sem vinnur með fólkinu, ekki gegn því.

Höfundur er rafmagnstæknifræðingur & nemandi í Executive MBA við Háskóla Reykjavíkur og skipar átjánda sæti Miðflokksins í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×