Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar 30. október 2026 14:01 Í dag lýkur árlegum alþjóðlegum ADHD-vitundarmánuði og því við hæfi að minnast þess sem vel er gert og benda um leið á hvað betur má fara. Hér kýs ég að beina sjónum að breytingum á umferðarlögum frá 2019 og skorti á reglugerð þar að lútandi sem ekki fylgdi. ADHD-samtökin fagna heilshugar því að núverandi innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, hafi fyrr í mánuðinum undirritað nýja reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja. Þetta segir ráðherra vera „mikilvægt fyrsta skref í átt að auknu réttaröryggi fyrir stóran hóp fólks sem hefur búið við algjöra óvissu um stöðu sína frá gildistöku umferðarlaga árið 2020.“ Reglugerðin tekur til vanhæfismarka vegna neyslu ávísunarskyldra lyfja sem innihalda nánar tilgreind efni, þegar þeirra er neytt á grundvelli ávísunar læknis og í samræmi við fyrirmæli hans. Samkvæmt reglugerðinni er styrkleiki efna í blóði umreiknaður þannig að hann samsvari magni vínanda í blóði. Miðað er við styrkleika efna sem samsvarar 0,5‰ vínandastyrk í blóði. Jafnframt kemur fram að breytingin sé gerð „[...] með hliðsjón af niðurstöðum rannsókna sem Norðmenn réðust í að taka saman og horft hafi verið til framsetningar vanhæfismarka í Noregi.“ Fullyrða má þó að samsvörun við norsku umferðarlögin (vegtrafikkloven) virðist takmörkuð, bæði í lögunum sjálfum og í þeirri stuttu reglugerð sem nú hefur loks litið dagsins ljós. Til dæmis fylgir norsku reglugerðinni listi yfir 28 efni þar sem vanhæfismörk eru skilgreind. Í fylgiskjali við íslensku reglugerðina eru hins vegar einungis tilgreind 21 innihaldsefni, þar af aðeins eitt sem tengist beint ADHD-lyfjameðferð. Hvergi er að finna skýringar á þessum mun. Eitt atriði stendur þó sérstaklega upp úr varðandi norsku löggjöfina og reglugerð þar að lútandi: Vanhæfistafla sem fylgir gildir ekki um þá sem taka inn lyf samkvæmt læknisráði, heldur nær undanþága eingöngu yfir þá sem ekki eru með lyfseðil. Hér fer ekki saman mynd og hljóð, hvorki þegar litið er til íslensku laganna né nýju reglugerðarinnar. Hvað var tekið upp úr norsku löggjöfinni, hverju var sleppt og hvers vegna? Þessu þarf að svara með skýrum hætti. Vanhæfistafla sem fylgir þeim gildir ekki um þá sem taka inn lyf samkvæmt læknisráði, heldur nær undanþága eingöngu yfir þá sem ekki eru með lyfseðil . Með öðrum orðum tryggir norska löggjöfin að einstaklingi sem ávísað eru tilteknu lyfi og læknir getur staðfest (fyrirfram eða eftir á) að viðkomandi sé hæfur til að stjórna ökutæki þurfi ekki á þessari undanþágu að halda. Eins og fram kemur í lögfræðiáliti sem ADHD-samtökin birtu árið 2023, og áréttuðu síðar í umsagnarferli fyrrnefndrar reglugerðar, er nauðsynlegt að huga að frekari lagabreytingum í kjölfar setningar hennar. Um leið og ég þakka ráðherra fyrir að taka loks af skarið, vil ég ítreka þá ósk ADHD-samtakanna að ráðherra fylgi málinu eftir af festu: Tryggi vandaða endurskoðun á þeim göllum sem enn eru fyrir hendi í gildandi umferðarlögum varðandi ADHD-lyf og vanhæfismörk við stjórn ökutækis. Höfundur er formaður ADHD samtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhjálmur Hjálmarsson ADHD Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun